19.09.26 - 20:06
Brynjar Ingi Erluson
Nýr markvörður Juventus sleit krossband

Mynd: Juventus FC

Mynd: Juventus FC
Pólski markvörðurinn Kamil Grabara, sem gekk í raðir Juventus frá Wolfsburg undir lok félagaskiptagluggans, verður líklega ekki meira með á tímabilinu eftir að hafa slitið krossband.
Juventus fékk tvo markverði til félagsins í sumar. Guglielmo Vicario kom á láni frá Tottenham og skömmu síðar fylgdi Grabara á láni frá Wolfsburg.
Það var frá upphafi ljóst að Vicario yrði aðalmarkvörður liðsins en Grabara honum til halds og trausts.
Juventus þarf nú hins vegar að treysta á að Vicario haldist heill, því að annars hefur félagið aðeins reynsluboltann Carlo Pinsoglio til taks.
Í sumum löndum er hægt að sækja um neyðarlán vegna markvarðameiðsla, en sá möguleiki er þó líklega ekki í boði í ítölsku deildinni. Reglurnar eru mjög strangar í þessum málum og undanþágur sjaldan veittar.
„Kamil Grabara var sendur í rannsóknir eftir að hafa meiðst á hné á æfingu. Niðurstöðurnar sýndu að hann hefði slitið krossband í hægra hné. Hann mun nú ráðfæra sig við bæklunarlækna og í kjölfarið verður ákveðið hvernig endurhæfingu hans verður háttað,“ segir í tilkynningu Juventus.

Bollettino medico | Le condizioni di Grabara
— JuventusFC (@juventusfc) September 19, 2026
????? https://t.co/gS6EEJ9p0l pic.twitter.com/WqbfiEDP6Q