Fotbolti.net
19.09.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Sá markahæsti ekki valinn í fyrsta hóp Xavi

Sá markahæsti ekki valinn í fyrsta hóp Xavi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Xavi var ráðinn í hollenska landsliðsþjálfarastarfið í sumar þegar hann tók við af Ronald Koeman í annað sinn á sínum stutta þjálfaraferli.
Þessi fyrrum þjálfari Barcelona og Al-Sadd, sem er fyrsti útlendingurinn til að stýra Hollandi í tæp 50 ár, er búinn að velja fyrsta landsliðshópinn í nýju starfi og er markahæsti leikmaður í sögu Hollands ekki með.

32 ára Memphis Depay, sem kom við sögu í þremur leikjum á HM í sumar og átti eina stoðsendingu, hefur ekki verið að gera sérlega vel með Corinthians í Brasilíu og er því ekki í landsliðshópnum. Hann er markahæsti leikmaður í sögu hollenska landsliðsins með 55 mörk í 112 leikjum. Robin van Persie er næstmarkahæstur í sögunni með 50 mörk í 102 leikjum.

Auk Memphis missa HM-fararnir Mats Wieffer, Marten de Roon, Guus Til, Frenkie de Jong og Wout Weghorst af landsliðskallinu, en af þeim eru Wieffer og De Jong að glíma við meiðsli.

Jurriën Timber kemur aftur í hópinn eftir að hafa misst af HM vegna meiðsla og þá fá Jeremie Frimpong, Kenneth Taylor, Joey Veerman, Ruben van Bommel og Gjivai Zechiël tækifæri undir nýjum þjálfara. Af þeim eru Van Bommel og Zechiel að þreyta frumraun sína með A-landsliðinu.

Holland mætir Þýskalandi, Grikklandi og Serbíu tvisvar í komandi landsleikjahléi. Landsleikjahléð verður lengra en vanalega eftir ákvörðun um að sameina hlén sem áður voru í september og október, til að minnka ferðalög leikmanna.

Sá markahæsti ekki valinn í fyrsta hóp Xavi
Canon

Mynd: Holland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.