Fotbolti.net
19.09.26 - 14:21
Brynjar Ingi Erluson

„Sama gamla sagan hjá Tottenham“

„Sama gamla sagan hjá Tottenham“
Canon

Mynd: EPA

Tottenham fer inn í landsleikjapásuna í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-2 tapið gegn Aston Villa í dag.
Einkunnir Tottenham og Villa: Margar fimmur - Manzambi og Suzuki bestir
TENGT EFNI

Einkunnir Tottenham og Villa: Margar fimmur - Manzambi og Suzuki bestir

Lærisveinar Roberto De Zerbi höfðu ekki skorað deildarmark á tímabilinu fyrir leikinn og fyrstu mörkin komu ekki fyrr en undir lokin þegar liðið var komið 3-0 undir.

Tottenham hefur skapað sér færi en nýtingin verið slök. Það létti því ákveðnu fargi af liðinu að koma boltanum loksins í netið, en pressan er áfram mikil. Liðið er aðeins með tvö stig eftir fimm leiki og er komið í fallsæti.

Michael Dawson, fyrrum leikmaður félagsins, segir þetta vera sömu gömlu söguna hjá Tottenham.

„Þetta er bara sama gamla sagan hjá Tottenham, því miður fyrir þá. Ef þú skorar ekki þegar þú ert í góðum gír þá verður þér alltaf refsað.“

„Það er jákvætt að liðið skoraði tvö mörk, en þeir fengu samt á sig þrjú.“

„Pressan eykst, það er bara nákvæmlega það sem gerist,“
sagði Dawson.

Tottenham hefur hafnað í 17. sæti deildarinnar síðustu tvö tímabil og þrátt fyrir að hafa fengið inn sterka leikmenn í sumar virðist ætla að vera sömu vandræði á þeim í ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.