Fotbolti.net
19.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Samba í skýjunum: Þetta er bara upphafið

Samba í skýjunum: Þetta er bara upphafið
Canon

Mynd: EPA

Táningurinn Floyd Samba var í byrjunarliði Manchester City í fyrsta sinn á ferlinum og átti magnaða frumraun í stórsigri gegn Norwich City í enska deildabikarnum í miðri viku.
Maresca: Hefur ekki spilað marga leiki sem 'nía'
TENGT EFNI

Maresca: Hefur ekki spilað marga leiki sem 'nía'

17 ára Samba byrjaði í fremstu víglínu í stað Erling Haaland og gerði sér lítið fyrir með að skora tvennu. Hann átti einnig þátt í öðru marki og var valinn maður leiksins, en lokatölur urðu 5-0 fyrir Man City.

„Ég vissi að ég myndi fá einhver tækifæri til að fá mínútur en að eiga svona frumraun er ótrúlegt. Ég trúi þessu varla sjálfur, en þetta er bara upphafið. Mín bíður merkilegur ferill í fótboltaheiminum og þetta var stórkostleg byrjun. Ég gæti ekki verið ánægðari akkúrat þessa stundina," sagði Samba eftir lokaflautið gegn Norwich.

Floyd Samba er sonur Chris Samba, sem lék meðal annars fyrir Blackburn Rovers, QPR og Aston Villa á ferli sínum auk þess að hafa verið landsliðsmaður Kongó.

Einkunnir Man City: Fær aðeins sexu þrátt fyrir mark og stoðsendingu
TENGT EFNI

Einkunnir Man City: Fær aðeins sexu þrátt fyrir mark og stoðsendingu

Samba í skýjunum: Þetta er bara upphafið
Canon

Mynd: Man City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.