19.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sarr kom við sögu: Stuðningsmenn elska hann

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ismaïla Sarr hefur verið frá keppni í mánuð vegna meiðsla en kom við sögu í 4-0 sigri Crystal Palace gegn Lech Poznan í Evrópudeildinni í vikunni.

TENGT EFNI
Sarr svekktur að fara ekki til Liverpool - „Þarf að melta þetta“
Liverpool reyndi að kaupa Sarr í sumar en Palace hafnaði tilboðum í kantmanninn sem var augljóslega ósáttur. Pierre Sage þjálfari Palace segir að stuðningsmenn elski Sarr þrátt fyrir sögusagnir sumarsins.
„Ég veit að stuðningsmenn elska hann og mér finnst hann vera leikmaður sem á skilið að vera elskaður á þennan hátt," sagði Sage eftir sigurinn.
„Það er alltaf erfitt að koma aftur til baka eftir svona meiðsli. Fyrir okkur er mikilvægt að gefa honum sem flestar mínútur útaf því að hann verður betri og betri því fleiri mínútur sem hann spilar."