19.09.26 - 21:01
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Óstöðvandi Raphinha með þrennu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sevilla 1 - 3 Barcelona
1-0 Youssouf Fofana ('19 )
1-1 Raphinha ('22 )
1-2 Raphinha ('52 )
1-3 Raphinha ('69 )
1-0 Youssouf Fofana ('19 )
1-1 Raphinha ('22 )
1-2 Raphinha ('52 )
1-3 Raphinha ('69 )
Sevilla tók á móti Barcelona í lokaleik dagsins í efstu deild á Spáni og skoraði Youssouf Fofana fyrsta mark leiksins með skalla af stuttu færi á 19. mínútu en Raphinha, sem er fyrirliði Barcelona, svaraði skömmu síðar.
Raphinha fékk góða sendingu úr vörninni frá Andreas Christensen og gerði mjög vel að skapa sér pláss með að leika á einn varnarmann áður en hann kláraði með marki og var staðan 1-1 í leikhlé.
Brasilíski kantmaðurinn byrjaði seinni hálfleikinn á að skalla boltann í netið eftir magnaðan undirbúning frá Lamine Yamal. Sautján mínútum síðar fullkomnaði Raphinha þrennuna með laglegri afgreiðslu eftir aðra stoðsendingu frá Yamal.
Staðan var því orðin 1-3 eftir 69 mínútur og áttu heimamenn engin svör.
Börsungar voru sterkari aðilinn nánast allan leikinn og hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk, en gerðu ekki. Lokatölur 1-3.
Spánarmeistararnir fara inn í landsleikjahléð með fullt hús stiga eftir sjö fyrstu umferðirnar á nýju deildartímabili. Sevilla er í 5. sæti með 13 stig.
Raphinha hefur farið ótrúlega vel af stað á tímabilinu og er kominn með 14 mörk og 3 stoðsendingar í 8 leikjum í öllum keppnum.