19.09.26 - 14:51
Brynjar Ingi Erluson
Stórkostlegar fréttir fyrir Börsunga

Raphinha

Mynd: EPA

Raphinha

Mynd: EPA
Brasilíski sóknarmaðurinn Raphinha verður áfram í herbúðum Barcelona næstu fjögur árin, en Deco, yfirmaður íþróttamála hjá félaginu, staðfesti í dag að samkomulag væri í höfn.
Framtíð Raphinha hefur reglulega verið í umræðunni og lengi var talað um að Barcelona gæti hugsað sér að selja hann.
Það virðist þó aldrei hafa komið raunverulega til greina enda er Brasilíumaðurinn gríðarlega mikilvægur liðinu og hefur farið hamförum í upphafi tímabilsins með ellefu mörk og þrjár stoðsendingar.
Raphinha, sem er 29 ára, hefur nú samþykkt að gera nýjan fjögurra ára samning við félagið.
„Við erum með samkomulag um að hann verði áfram og hann mun fljótlega skrifa undir samninginn,“ sagði Deco.
Síðan Raphinha gekk í raðir Barcelona frá Leeds árið 2022 hefur hann unnið spænsku deildina þrisvar, bikarinn einu sinni og Ofurbikarinn þrisvar.