19.09.26 - 13:08
Brynjar Ingi Erluson
Stutt gaman hjá Hafrúnu - Emelía á toppnum

Hafrún Rakel meiddist hjá Bröndby

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hafrún Rakel meiddist hjá Bröndby

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Danska kvennaliðið Köge er með fimm stiga forystu á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar eftir 4-0 sigur liðsins á Midtjylland í dag.
Emelía Óskarsdóttir var í byrjunarliði Köge en fór af velli eftir klukkutímaleik.
Köge bætti síðan við tveimur mörkum og tryggði sér þægilegan sigur. Liðið er nú með 21 stig, fimm stigum meira en Nordsjælland sem er í öðru sæti og á leik til góða.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir meiddist í frábærum 4-0 sigri Bröndby á Fortuna Hjörring.
Hún kom inn af bekknum á 59. mínútu en þurfti að fara af velli fimm mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma. Bröndby er í þriðja sæti með 14 stig.
Ásdís Karen Halldórsdóttir og stöllur hennar í AIK unnu 2-1 sigur á Hammarby, sem er í titilbaráttunni í sænsku úrvalsdeildinni.
Ásdís Karen lék allan leikinn með AIK en Guðrún Arnardóttir var í liði Hammarby og lagði upp eina mark liðsins, sem kom tuttugu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.
Sænsku meistararnir í Häcken eiga nú möguleika á að ná fimm stiga forystu í titilbaráttunni. Liðið mætir Eskilstuna og er staðan markalaus þegar um sjö mínútur hafa verið leiknar.