Fotbolti.net
19.09.26 - 10:19
Brynjar Ingi Erluson

Þrír miðjumenn á óskalista Liverpool - Branthwaite til Man Utd?

Kees Smit er ofarlega á óskalista Liverpool

Kees Smit er ofarlega á óskalista Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Liverpool er að skoða hollenska miðjumanninn Kees Smit, Manchester United heldur áfram að eltast við leikmann Everton og þá gæti Lamine Camara, miðjumaður Mónakó, verið falur í janúarglugganum. Þetta og fleira er í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Liverpool fylgdist með hollenska miðjumanninum Kees Smit (20), leikmanni AZ Alkmaar, þegar hann lék gegn Sunderland í Evrópudeildinni í vikunni. Chelsea, Nottingham Forest og Aston Villa eru einnig meðal þeirra félaga sem fylgjast með þessum efnilega leikmanni. (Teamtalk)

Manchester United fylgist grannt með frammistöðu enska varnarmannsins Jarrad Branthwaite (24), sem er á mála hjá Everton. (Football Insider)

Tottenham leiðir kapphlaupið um hinn 19 ára gamla Arthur Dias hjá Athletico Paranaense í Brasilíu. Newcastle, Nottingham Forest og Brentford fylgjast einnig með stöðu varnarmannsins sem er metinn á 30 milljónir evra. (Teamtalk)

Mónakó hefur staðfest áform sín um að selja bandaríska framherjann Folarin Balogun (25) í janúarglugganum, aðeins nokkrum vikum eftir að leikmaðurinn hætti við að fara til Everton á lokadegi sumargluggans. (Standard)

Fjölmörg félög víða um Evrópu fylgjast með enska varnarmanninum Josh Acheampong (20) og stöðu hans hjá Chelsea. (AS)

Mónakó hefur viðurkennt að senegalski miðjumaðurinn Lamine Camara (22) gæti yfirgefið félagið í janúarglugganum, en Chelsea og Liverpool eru sögð áhugasöm. (Standard)

Real Madrid ætlar að leggja allt í sölurnar til að fá Abdellah Ouazane (17), miðjumann Ajax. (Fichajes)

Newcastle United ætlar að endurvekja áhuga sinn á norska miðjumanninum Bo Hegland (22), sem leikur með Djurgården í Svíþjóð, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hann hafnaði félaginu í sumar. (Football Insider)

Arsenal, Brighton og Aston Villa fylgjast öll með austurríska miðjumanninum Luca Weinhandl (17), sem leikur með Sturm Graz í heimalandinu. Hann er metinn á 20 milljónir punda. (Teamtalk)

Tottenham er að íhuga að fá argentínska framherjann Mauro Icardi (33) á frjálsri sölu eftir að hann yfirgaf Galatasaray í sumar. Félagið gæti þó ekki skráð hann í hópinn fyrr en í janúar. (Express)

Manchester City og Liverpool hafa mikinn áhuga á þýska miðjumanninum Felix Nmecha (25) hjá Borussia Dortmund, en talið er að félagið vilji fá um 80-90 milljónir evra fyrir hann. (Fussball News)

Chelsea er komið í baráttuna um gambíska unglingalandsliðsmanninn Adama Jeng (15), sem leikur með Tromsö í Noregi. (Football Insider)
Jarrad Branthwaite hefur lengi verið orðaður við Man Utd

Jarrad Branthwaite hefur lengi verið orðaður við Man Utd

Canon

Mynd: EPA

Chelsea og Liverpool hafa enn mikinn áhuga á Lamine Camara

Chelsea og Liverpool hafa enn mikinn áhuga á Lamine Camara

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.