Ólíklegt þykir að Vigil van Dijk spili meira með Liverpool á þessu tímabili eftir að hann skaddaði krossbönd eftir tæklingu Jordan Pickford í grannaslagnum gegn Everton um helgina.
Van Dijk byrjaði 93 deildarleiki í röð með Liverpool eftir hann kom til félagsins frá Southampton í janúar 2018 áður en hann meiddist um helgina. Van Dijk hefur verið magnaður í vörn Liverpool og meiðslin eru mikið áfall fyrir liðið.
Joel Matip og Joe Gomez eru einu miðverðirnir í hópnum hjá Liverpool í dag eftir meiðsli Van Dijk en Dejan Lovren var seldur til Zenit St. Pétursborg á 10,9 milljónir punda í sumar. Matip spilaði á laugardag fyrsta heila leikinn sinn í ensku úrvalsdeildinni í heilt ár en hann hefur verið mikið meiddur. Matip og Gomez hafa aldrei áður byrjað leik saman í ensku úrvalsdeildinni enda Van Dijk alltaf verið til staðar.
Brasilíski miðjumaðurinn Fabinho hefur leyst af í hjarta varnarinnar áður og hann mun án efa einnig fá það hlutverk á næstu vikum ef Matip eða Gomez meiðast eða þurfa hvíld.
Nathaniel Phillips, Rhys Williams og Billy Koumetio gætu einnig spilað en þeir eru allir óreyndir á stóra sviðinu. Nathaniel var á láni hjá Stuttgart á síðasta tímabili en Liverpool kallaði hann til baka fyrir bikarleik gegn Everton í janúar.
Liverpool á sex leiki framundan á næstu 18 dögum og samtals eru leikirnir 17 talsins áður en félagaskiptaglugginn opnar í janúar. Liverpool gæti þá farið út á markaðinn og bætt miðverði við hópinn fyrir síðari hluta tímabils.
„Liverpool þarf klárlega að fara á markaðinn í janúar. Ekki bara út af meiðslum Van Dijk heldur er Liverpool veikburða í þessari stöðu fyrr. Þeir misstu Lovren fyrir tímabilið og aðrir leikmenn í þessari stöðu eru mjög mikið meiddir," sagði Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, á Sky í gær.
Mögnuð tölfræði
Það verður ekki auðvelt fyrir Liverpool að fylla skarð Van Dijk. Liðið hefur fengið 78 mörk á sig í 96 leikjum síðan Hollendingurinn kom eftir að hafa fengið 120 mörk á sig í 96 deildarleikjum áður en hann kom.
Van Dijk hefur einnig hjálpað Liverpool að halda 43 sinnum hreinu í ensku úrvalsdeildinni.
Van Dijk hefur skorað sex skallamörk í úrvalsdeildinni síðan í byrjun tímabils sem eru næstflest skallamörk í deildinni á eftir Dominic Calvert-Lewin
Athugasemdir