Fotbolti.net
19.11.19 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Capello: Lampard getur þjálfað enska landsliðið

Frank Lampard.

Frank Lampard.

Canon

Mynd: Getty Images

Fabio Capello, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga, telur að Frank Lampard geti fetað í fótspor sín og þjálfað landsliðið í framtíðinni.

Lampard spilaði undir stjórn Capello í enska landsliðinu á sínum tíma.

Lampard hefur byrjað vel sem stjóri Chelsea og Capello telur að hann geti orðið landsliðsþjálfari einn daginn.
„Líklega...hann getur það. Hann skilur allt og hann hefur byrjað óttalaus í starfi og sett unga leikmenn inn á völlinn," sagði Capello.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.