Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 19. nóvember 2020 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
8 leikmenn Chelsea skoruðu alls 13 mörk í glugganum
Mason Mount og Kári Árnason
Mason Mount og Kári Árnason
Mynd: Getty Images
Leikmenn Chelsea hafa verið funheitir í þessum landsleikjaglugga. Átta leikmenn liðsins hafa skorað a.m.k. eitt mark.

Leikmennirnir eru þeir: Hakim Ziyech sem skoraði þrjú mörk fyrir Marokkó, Olivier Giroud sem skoraði tvö mörk fyrir Frakka, Timo Werner sem skoraði tvö mörk fyrir Þjóðverja, Mateo Kovacic sem skoraði tvö mörk fyrir Króatíu, Jorginho sem skoraði fyrir Ítalíu, N'Golo Kante sem skoraði fyrir Frakka og Callum Hudson-Odoi sem skoraði fyrir U21 árs landslið Englands.

Þrettánda markið skoraði Mason Mount fyrir enska liðið á Wembley gegn Íslandi í gær. Markið var annað mark leiksins í 4-0 sigri.

Chelsea mætir Newcastle á útivelli á laugardag í ensku úrvalsdeildinni. Fimm af þessum átta voru í byrjunarliðinu gegn Sheffield United í síðasta deildarleik. Þeir Jorginho, Hudson-Odoi og Giroud voru á bekknum.


Athugasemdir
banner
banner
banner