19.11.26 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Shevchenko svarar Mudryk fullum hálsi

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úkraínski kantmaðurinn Mykhailo Mudryk kennir úkraínska fótboltasambandinu um að hafa fallið á lyfjaprófi haustið 2024 og hefur goðsögnin Andriy Shevchenko, sem er forseti úkraínska fótboltasambandsins, svarað fullum hálsi.

TENGT EFNI
Mudryk kennir úkraínska sambandinu um
Mudryk er 25 ára gamall og missti af meira en einu og hálfu ári af fótbolta eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.
Hann er samningsbundinn Chelsea en leikur á láni hjá Tottenham þetta tímabilið, en hefur verið frá keppni undanfarnar vikur vegna meiðsla á ökkla.
„Talsmenn Mudryk reyndu ítrekað að sannfæra fótboltasambandið um að finna starfsmann til að henda undir rútuna í þessu máli, starfsmann sem myndi ljúga og taka á sig ábyrgðina fyrir magninu af meldonium (ólöglega efninu) sem fannst í lyfjaprófinu. Fótboltasambandið hafnaði þeim beiðnum," segir Shevchenko, sem starfaði sem landsliðsþjálfari Úkraínu frá 2016 til 2021 eftir að hafa skorað 48 mörk í 111 landsleikjum á mögnuðum ferli.
„Málið hefur verið rannsakað og hefur engum enn tekist að finna út hvenær eða hvernig efnið rataði inn í líkama leikmannsins."
Mudryk ræddi meðal annars um Shevchenko í viðtali sem hann gaf á dögunum og sagði litla sem enga hjálp hafa verið í forsetanum í kringum málið.
„Ég þekki fólkið sem starfar í kringum landsliðið mjög vel, ég hef starfað með þeim í mörg ár og treysti þeim fullkomlega. Á öllum þeirra starfsárum með landsliðinu hefur svona mál aldrei komið upp, eða neitt annað mál sem myndi láta fólk efast um fagmennsku fótboltasambandsins," segir Shevchenko.
„Ef Mykhailo getur reitt fram sönnunargögn sem sanna mál hans þá viljum við sjá þau. Ef engin sönnunargögn eru fyrir hendi þá býst ég við að hann dragi ummælin sín formlega til baka og biðji þá einstaklinga afsökunar sem hann sakar um að skorta heiðarleika og fagmennsku."
Mudryk hefur skorað 3 mörk í 28 landsleikjum með Úkraínu.