Fotbolti.net
20.01.20 - 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Óttast að meiðsli Willems séu mjög alvarleg

Willems sárkvalinn.

Willems sárkvalinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Steve Bruce, stjóri Newcastle, óttast að bakvörðurinn Jetro Willems verði lengi frá vegna meiðsla sem hann hlaut í 1-0 sigrinum á Chelsea á laugardag.
Willems, sem er á láni hjá Newcastle frá Eintracht Frankfurt í Þýskalandi, var borinn af velli í fyrri hálfleik.

Bruce óttast það að Willems hafi orðið fyrir krossbandsmeiðslum.

„Þetta lítur út fyrir að vera hræðileg meiðsli fyrir Jetro, og er það mikið áfall fyrir okkur," sagði Bruce eftir leikinn gegn Chelsea.

Newcastle hefur lent í miklum meiðslavandræðum á tímabilinu. „Við eigum skilið smá heppni. Ég hef aldrei upplifað annað eins síðustu vikurnar þannig að við eigum skilið smá heppni."

Newcastle er í sérstökum vandræðum vinstra megin í vörninni þar sem Paul Dummett er líka meiddur.

Newcastle er í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og hafa ekki látið meiðslavandræðin mikið á sig fá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.