Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. febrúar 2021 15:13
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Keflavík fór létt með Vestra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík 5 - 0 Vestri
1-0 Magnús Þór Magnússon ('3)
2-0 Helgi Þór Jónsson ('35)
3-0 Ari Steinn Guðmundsson ('65)
4-0 Kian Williams ('77)
5-0 Friðrik Þórir Hjaltason ('86, sjálfsmark)

Keflavík rúllaði yfir Vestra er liðin mættust í A-deild Lengjubikarsins í dag. Magnús Þór Magnússon kom Keflvíkingum yfir strax á þriðju mínútu.

Helgi Þór Jónsson tvöfaldaði forystuna og var staðan 2-0 í leikhlé.

Hlutirnir versnuðu fyrir Vestra því Ari Steinn Guðmundsson og Kian Williams gerðu út um viðureignina í síðari hálfleik og urðu lokatölur 5-0.

Keflavík er með fjögur stig eftir tvær umferðir, Vestri er án stiga.
Athugasemdir
banner
banner
banner