Fotbolti.net
20.02.21 - 15:30
Ívan Guðjón Baldursson

Tuchel skipti Hudson-Odoi inn og aftur út: Ekki sannfærandi

Tuchel skipti Hudson-Odoi inn og aftur út: Ekki sannfærandi
Canon

Mynd: Getty Images

Thomas Tuchel var ósáttur með Callum Hudson-Odoi ungstirni Chelsea í 1-1 jafntefli gegn Southampton í dag.
Southampton tók forystuna í fyrri hálfleik og ákvað Tuchel að skipta Tammy Abraham af velli í leikhlé og kom Hudson-Odoi inn í hans stað.

Chelsea jafnaði skömmu síðar en Tuchel var ekki sáttur með frammistöðu Hudson-Odoi og sendi hann aftur á bekkinn á 76. mínútu til að gera pláss fyrir Hakim Ziyech.

Hudson-Odoi spilaði því frá 45. til 75. mínútu leiksins.

„Ég var ekki ánægður með líkamstjáninguna hans. Hann var ekki sannfærandi á boltanum, hann virðist ekki vera tilbúinn til að leggja sitt af mörkum. Þetta er erfitt fyrir hann en á morgun verður þetta gleymt," sagði Tuchel að leikslokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.