Filip Stuparevic er framherji sem ÍBV sótti fyrir tímabilið. Fyrir komuna til Íslands hafði hann ekki spilað í langan tíma, ekkert frá því í febrúar 2025 vegna meiðsla.
Í umfjöllun Stúkunnar þar sem 7. umferð Bestu deildarinnar var gerð upp á SÝN Sport var rætt um ákvörðun þjálfarans að spila með Ara í Haraldsstovu Petersen í markinu og Stuparevic í framlínunni gegn Víkingi. Markvörðurinn Marcel Zapytowski var ekki til taks fyrir ÍBV eftir að hafa lent í vinnuslysi en hann hafði verið á varamannabekknum í tveimur leikjum þar á undan eftir að hafa spilað mjög vel á síðasta tímabili.
Í umfjöllun Stúkunnar þar sem 7. umferð Bestu deildarinnar var gerð upp á SÝN Sport var rætt um ákvörðun þjálfarans að spila með Ara í Haraldsstovu Petersen í markinu og Stuparevic í framlínunni gegn Víkingi. Markvörðurinn Marcel Zapytowski var ekki til taks fyrir ÍBV eftir að hafa lent í vinnuslysi en hann hafði verið á varamannabekknum í tveimur leikjum þar á undan eftir að hafa spilað mjög vel á síðasta tímabili.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 2 Víkingur R.
Leikurinn á sunnudag var annar byrjunarliðsleikurinn hjá Stuparevic í deildinni. Hann hefur komið inn á í þremur deildarleikjum og var tvisvar utan hóps.
„Þeir eru að rembast við að spila Stuparevic í form, hann er í engu standi til að spila í efstu deild á Íslandi. Þú ert með Viggó Valgeirs og Liam Jeffs, spræka stráka, á bekknum. Ég set meira spurningarmerki við það (en ákvörðunina með markmanninn)," sagði Halldór Árnason í þættinum.
„Ég skil engan veginn af hverju hann er að spila. Hann er svo „soft", nær aldrei að taka sér stöðu fyrir framan hafsenta Víkings, Ekroth og Vatnhamar voru auðveldlega með hann í vasanum í dag. Hann er aldrei nógu sterkur í návígum og það er engin orka í honum. Fyrir ÍBV, neðsta liðið í deildinni, þá er ungur leikmaður í formi sóttur í Liam Jeffs, hann er búinn að skora... stuðningsmenn geta fyrirgefið gæðaleysi, þetta er Besta deildin, en menn verða að sýna ákveðið hjarta og að þeir séu að gefa allt í þetta. Stuparevic er í engu standi. Ég veit ekki hvort hann sé það góður leikmaður að það sé þess virði að vera nánast 10 á móti 11 til að koma honum í form. En eins og staðan er núna er hann í engu formi og ÍBV hefur ekkert efni á því að vera spila honum í form," sagði Albert Brynjar Ingason.
„Þú veist aldrei nákvæmlega hvernig menn munu aðlagast deildinni, en þú ættir samt að geta komist að því hvort leikmenn séu í formi og hvað þeir eru búnir að gera í aðdragandanum. Það var augljóst að Stuparevic var ekki í formi þegar hann kom," bætti Halldór við.
Hér í spilaranum fyrir neðan má nálgast uppgjörsþáttinn Innkastið þar sem umferðin í Bestu deildinni var gerð upp.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 10 | 9 | 1 | 0 | 34 - 6 | +28 | 28 |
| 2. KR | 10 | 8 | 1 | 1 | 38 - 23 | +15 | 25 |
| 3. Fram | 9 | 6 | 2 | 1 | 25 - 16 | +9 | 20 |
| 4. Breiðablik | 9 | 4 | 3 | 2 | 22 - 15 | +7 | 15 |
| 5. Valur | 10 | 5 | 0 | 5 | 19 - 22 | -3 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 9 | 3 | 2 | 4 | 12 - 18 | -6 | 11 |
| 8. KA | 9 | 3 | 1 | 5 | 12 - 15 | -3 | 10 |
| 9. Stjarnan | 10 | 3 | 1 | 6 | 18 - 22 | -4 | 10 |
| 10. Þór | 9 | 2 | 0 | 7 | 7 - 23 | -16 | 6 |
| 11. ÍBV | 9 | 1 | 2 | 6 | 14 - 23 | -9 | 5 |
| 12. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |

