Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 20. júní 2022 18:22
Anton Freyr Jónsson
Byrjunarlið Stjörnunnar og KR: Óskar á bekknum gegn gömlu félögunum
Óskar Örn Hauksson.
Óskar Örn Hauksson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan og KR mætast á Samsungvellinum í Garðabæ í kvöld í tíundu umferð Bestu deildar karla. Sigurður Hjörtur Þrastarson flautar til leiks klukkan 19:15. 

Stjarnan situr fyrir leik kvöldsins í þriðja sæti deildarinnar með 18 stig. Gestirnir úr Vesturbænum sitja í því sjötta og takist KR að vinna í kvöld jafna þeir Stjörnunna að stigum. 

Bæði þessi lið gerðu jafntefli í síðustu umferð. Stjarnan heimsótti Keflavík í leik sem endaði 2-2 og KR fékk ÍA í heimsókn á Meistaravelli í leik sem endaði 3-3.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  1 KR

Beinar textalýsingar:
18:00 Fram - ÍBV
19:15 Breiðablik - KA
19:15 Stjarnan - KR

Stjarnan gerir eina breytingu á liðinu sínu frá jafnteflinu gegn Keflavík. Daníel Finns Matthíasson kemur inn í liðið fyrir Jóhann Árna Geirsson.Óskar Örn Hauksson er áfram í bekknum hjá Stjörnunni.

KR gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn ÍA. Pálmi Rafn Pálmason, Hallur Hansson og Aron Kristófer Lárusson koma allir inn í liðið. Kristinn Jónsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson fá sér sæti á bekknum. Þorsteinn Már Ragnarsson sem byrjaði gegn ÍA í síðustu umferð er utan hóps hjá KR í kvöld.
Byrjunarlið Stjarnan:
0. Haraldur Björnsson
0. Björn Berg Bryde
4. Óli Valur Ómarsson
6. Sindri Þór Ingimarsson (f)
7. Ísak Andri Sigurgeirsson
7. Eggert Aron Guðmundsson
9. Daníel Laxdal
15. Þórarinn Ingi Valdimarsson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Daníel Finns Matthíasson
22. Emil Atlason

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
0. Pálmi Rafn Pálmason
4. Hallur Hansson
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Kjartan Henry Finnbogason
11. Kennie Chopart (f)
14. Ægir Jarl Jónasson (f)
16. Theodór Elmar Bjarnason (f)
18. Aron Kristófer Lárusson
23. Atli Sigurjónsson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner