Fotbolti.net
20.06.23 - 22:45
Brynjar Ingi Erluson

Arnór Ingvi: Ég er ekki VAR-dómari en þetta er spes

Auglýsing
Arnór Ingvi í baráttunni við Bruno Fernandes

Arnór Ingvi í baráttunni við Bruno Fernandes

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Arnór Ingvi Traustason spilaði óaðfinnanlega á miðjunni í 1-0 tapi Íslands gegn Portúgal í kvöld og nýtur sín vel í nýju hlutverki en hann var valinn maður leiksins hér á Fótbolta.net.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 1 Portúgal
Njarðvíkingurinn hóf feril sinn með landsliðinu sem vængmaður en undanfarið hefur hann verið að spila á miðjunni hjá sænska liðinu Norrköping og fór Arnar Þór Viðarsson að nota hann þar með landsliðinu.

Age Hareide gerði það sama í dag og var útkoman stórkostleg en hann var líflegur á miðsvæðnu. Hann var eðlilega svekktur eftir svekkjandi tap en sá margt jákvætt.

„Þetta er mjög svekkjandi og heppnin einhvern veginn ekki að falla með okkur í báðum leikjunum. Frammistaðan var góð heilt yfir þannig getum við ánægðir hér í dag,“ sagði Arnór Ingvi við Fótbolta.net.

Hann fékk að vita það í gær að hann myndi byrja leikinn og fannst hann gera vel í dag. Þá er hann ánægður að spila þetta hlutverk með landsliðinu.

„Í gær og mér leið bara mjög vel. Fannst ég eiga góðan leik. Alveg 100 prósent, hef átt þá nokkra en mér leið mjög vel og holningin á liðinu hjálpaði mér gífurlega.

„Hentar mér mjög vel. Ég er að spila þetta út í Norrköping og líður mjög vel þarna.“


Það þurfti ekkert að hvetja liðið sérstaklega fyrir leikinn enda er Portúgal eitt af bestu landsliðum heims.

„Ég held að það þurfi ekkert að mótivera sig það er bara nóg að þetta sé Portúgal. Það var í öllu liðinu, góð stemning og það skein bara í gegn.“

Cristiano Ronaldo skoraði eina markið undir lokin en það tók dágóðan tíma að fá niðurstöðu hvort það hafi verið rangstaða í aðdragandanum. Arnóri fannst þetta allt saman mjög sérstakt og sagði að Diogo Dalot hafi ýtt Herði sem spilaði Goncalo Inacio réttstæðan.

„Ég sé það ótrúlega illa. Tveir menn koma út í rangstöðu og ýta á bakið á Herði. Ég er ekki varadómari en þetta er spes,“ sagði Arnór.

Þá var hann í skýjunum með stuðninginn á Laugardalsvelli og vonandi getur liðið gefið eitthvað til baka í framtíðinni.

„Geggjað en langt síðan síðast. Vonandi getum við fara að gefa betur til baka til fólksins,“ sagði Arnór enn fremur.
Arnór Ingvi: Ég er ekki VAR-dómari en þetta er spes
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.