Fotbolti.net
20.07.20 - 21:52
Helga Katrín Jónsdóttir

Cecilía: Það er svakalegur karakter í hópnum

Auglýsing
Cecilía: Það er svakalegur karakter í hópnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Hertz
<font color="#343434" face="-apple-system, system-ui, Segoe UI, Roboto, Oxygen-Sans, Ubuntu, Cantarell, Helvetica Neue, Arial, sans-serif"><span style="font-size: 14px;">Fylkir t&oacute;k &iacute; kv&ouml;ld &aacute; m&oacute;ti Stj&ouml;rnunni &iacute; 6. umfer&eth; Pepsi-Max deildar kvenna og &thorn;ar h&ouml;f&eth;u Fylkisstelpur betur. Cecil&iacute;a R&aacute;n, markma&eth;ur Fylkis, var a&eth; vonum s&aacute;tt me&eth; stigin &thorn;rj&uacute;:</span></font>
"Já maður er alltaf sáttur með 3 stig, við komum út í leikinn til að ná í stigin þrjú og það er alltaf gott að ná því markmiði."

 

"Við vorum svolítið ólíkar okkur, fundum það eiginlega strax og við byrjuðum leikinn að við vorum ekki alveg að finna stutta spilið en fannst það aðeins skárra í seinni hálfleik. En við getum svo miklu betur og þess vegna er ég sátt við að hafa tekið 3 stig hér í dag."




Garðbæingar sóttu stíft, sérstaklega í seinni hálfleik en inn vildi boltinn ekki. Cecilía segir það góðum varnarleik að þakka:

 

"Við erum með frábæran varnarleik, frá framherja að aftasta manni og við erum í þessu allar saman og fórnum okkur fyrir alla bolta og þess vegna fáum við á okkur lítið af mörkum, þó þau megi alveg vera færri. Það er þægilegt að hafa svona sterka varnarlínu fyrir framan sig, maður treystir henni fullkomlega."

 

"Það er svakalegur karakter í hópnum og liðsheildin er frábær og við ætlum bara að ná eins langt og við getum. Það stefna allir á það sama sem er að fara í hvern einasta leik til að vinna og það er frábært að vera hluti af svona hóp."

 

Viðtalið í heild sinn má sjá í spilaranum hér að ofan þar sem Cecilía ræðir meðal annars um markmið liðsins og framtíð sína í boltanum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.