Fotbolti.net
20.09.19 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Solskjær: Rétt ákvörðun að láta Lukaku og Sanchez fara

Mason Greenwood.

Mason Greenwood.

Canon

Mynd: Getty Images

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segir að það hafi verið rétt ákvörðun að láta Alexis Sanchez og Romelu Lukaku fara frá félaginu til Inter.

Hinn 17 ára gamli Mason Greenwood skoraði sigurmarkið gegn Astana í Evrópudeildinni en hann græðir á því að Sanchez og Lukaku eru farnir.
„Að mínu mati var þetta rétt ákvörðun," sagði Solskjær um þá ákvörðun að láta Lukaku og Sanchez fara og gefa Greenwood tækifæri í staðinn.

„Ég held að hann (Greenwood) verði mikilvægur fyrir okkur á þessu tímabili."

„Hann hefur ekki spilað mikið hingað til en hann mun fá mínútur og vaxa og dafna."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.