Fotbolti.net
20.09.26 - 10:42
Brynjar Ingi Erluson

Arsenal vill fá Endrick - Liverpool ætlar ekki að losa sig við Wirtz

Englandsmeistararnir hafa áhuga á Endrick

Englandsmeistararnir hafa áhuga á Endrick

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Arsenal horfir til Real Madrid, Liverpool býst við tilboðum í Florian Wirtz og Barcelona hefur enn áhuga á Erling Haaland, framherja Manchester City. Þetta og margt fleira er í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Arsenal er sagt hafa mikinn áhuga á brasilíska sóknarmanninum Endrick (20) hjá Real Madrid og gæti reynt að fá hann í janúarglugganum. Teymi framherjans er farið að hafa áhyggjur af spilatíma hans í Madríd. (Teamtalk)

Liverpool býst við tilboðum í þýska miðjumanninn Florian Wirtz (23) í janúar, en félagið hefur engan áhuga á að leyfa honum að fara. (Football Insider)

Barcelona hefur enn áhuga á norska framherjanum Erling Haaland (26) og gæti lagt fram risatilboð í hann á næsta ári. (Football Insider)

Tottenham hefur hafnað tilboði frá Shabab Al Ahli í brasilíska framherjann Richarlison (29). (Ekrem Konur)

Juventus og Atlético Madríd fylgjast náið með stöðu enska vængmannsins Noni Madueke (24) hjá Arsenal og gætu reynt að fá hann í janúarglugganum. (Football London)

Liverpool og Manchester City hafa áhuga á varnarmanninum Jon Aramburu (24), leikmanni Real Sociedad og landsliðsmanni Venesúela. (Teamtalk)

Ousmane Dembele (25), Khvicha Kvaratskhelia (25) og Desire Doue (21), leikmenn Paris Saint-Germain, eru allir í viðræðum við félagið um nýjan samning. (L'Equipe)

Juventus gæti reynt að fá markvörð á frjálsri sölu eftir að pólski markvörðurinn Kamil Grabara (27), sem er á láni frá Wolfsburg, sleit krossband á æfingu. (Calciomercato)
Liverpool er að búast við tilboðum í Florian Wirtz

Liverpool er að búast við tilboðum í Florian Wirtz

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.