20.09.26 - 12:42
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona undirbýr heiðursleik fyrir Messi

Lionel Messi

Mynd: EPA

Joan Laporta, forseti Barcelona

Mynd: EPA

Lionel Messi

Mynd: EPA
Argentínski snillingurinn Lionel Messi, einn besti leikmaður sögunnar og sá besti í sögu Barcelona, fær heiðursleik hjá félaginu þegar framkvæmdum á Camp Nou lýkur.
Messi kom aðeins 13 ára gamall til Barcelona árið 2000 og átti síðar eftir að slá nánast öll met sem hægt var að slá hjá félaginu.
Hann vann ógrynni titla með Barcelona og er í guðatölu hjá stuðningsmönnum félagsins, en árið 2021 neyddist hann til að yfirgefa félagið vegna fjárhagsvandræða þess.
Þaðan fór hann til Paris Saint-Germain og síðar Inter Miami þar sem hann leikur enn í dag.
Joan Laporta, forseti Barcelona, segir félagið nú undirbúa heiðursleik fyrir Messi á Camp Nou þegar framkvæmdum við leikvanginn lýkur árið 2028.
„Við erum að undirbúa heiðursleik fyrir Messi þegar Camp Nou verður tilbúinn. Það verður falleg stund og vonandi tekst okkur að ljúka framkvæmdunum á leikvanginum í byrjun árs 2028,“ sagði Laporta.
Samband Messi og Laporta er hins vegar ekki upp á sitt besta og tengist það meðal annars því hvernig staðið var að málum þegar Argentínumaðurinn þurfti að yfirgefa Barcelona.
Fyrir aðeins rúmu hálfu ári sagði Laporta að Messi væri enn ósáttur við hann.
„Samband mitt við Messi er ekki eins og það var áður. Það kom líka upp atvik á Ballon d'Or-verðlaunahátíðinni þar sem ég ætlaði að heilsa honum en hann hafði ekki áhuga á því. Þetta hefur skaðað samband okkar, en hann er samt goðsögn Barcelona,“ sagði Laporta þá.
Messi er á fjórða tímabili sínu með Inter Miami og hefur þegar gefið í skyn að landsliðsferillinn sé að renna sitt skeið. Hann spilar kveðjuleik í Buenos Aires í næsta mánuði áður en landsliðsskórnir fara endanlega upp í hillu.
Það er því spurning hversu mikið er eftir af ferlinum, en Messi er samningsbundinn Inter Miami út árið 2028.
Draumur hans hefur lengi verið að ljúka ferlinum í heimalandinu með uppeldisfélaginu Newell's Old Boys, en enn liggur engin skýr tímalína fyrir um hvenær eða hvort af því verður.