20.09.26 - 15:32
Brynjar Ingi Erluson
Brynjar skoraði í langþráðum sigri - Kristófer lagði upp sigurmark

Brynjar Ingi skoraði í langþráðum sigri

Mynd: SönderjyskE

Kristófer Jónsson lagði upp sigurmark Reggiana

Mynd: Reggiana

Brynjar Ingi skoraði í langþráðum sigri

Mynd: SönderjyskE
Brynjar Ingi Bjarnason skoraði í langþráðum fyrsta sigri SönderjyskE sem vann Randers, 4-2, í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
SönderjyskE hafði byrjað tímabilið illa og var aðeins með tvö stig eftir átta leiki.
Í dag tókst liðinu loksins að vinna og Brynjar átti stóran þátt í sigrinum. Hann skoraði annað mark liðsins undir lok fyrri hálfleiks og kom því yfir áður en SönderjyskE bætti við forystuna snemma í þeim síðari.
Frábær sigur hjá SönderjyskE sem er þó enn á botninum, nú með fimm stig.
Viktor Bjarki Daðason byrjaði hjá FCK í 1-0 sigri á nágrönnum sínum í Bröndby. Rúnar Alex Rúnarsson var á bekknum en Gunnar Orri Olsen ekki í hópnum.
FCK er á toppnum með 24 stig en Bröndby er ellefu stigum á eftir erkifjendunum.
Nóel Atli Arnórsson var í vörn Álaborgar sem gerði 2-2 jafntefli við Vendsyssel í B-deildinni. Álaborg er í 5. sæti með 13 stig.
Júlíus Magnússon byrjaði hjá Elfsborg í 2-1 sigri á Djurgården og Ari Sigurpálsson kom inn af bekknum. Elfsborg er í 4. sæti með 37 stig og náði að minnka bilið upp í Evrópusæti í fjögur stig.
Kristófer Jónsson lagði upp sigurmark Reggiana í 1-0 sigri liðsins á Latina í C-deildinni á Ítalíu. Reggiana hefur farið vel af stað og er í 2. sæti B-riðils með 14 stig eftir sex leiki.
Kolbeinn Birgir Finnsson byrjaði hjá Vålerenga í 1-1 jafntefli gegn Fredrikstad í norsku deildinni. Vålerenga er í 12. sæti með 23 stig.
Hilmir Rafn Mikaelsson kom inn af bekknum í 3-0 tapi Sigma Olomouc gegn Spörtu Prag í tékknesku úrvalsdeildinni. Sigma er í 4. sæti með 16 stig.
Bjarki Steinn Bjarkason byrjaði hjá Sudtirol sem vann 4-1 sigur á Arezzo í B-deildinni á Ítalíu. Liðið er í 3. sæti með ellefu stig eftir fimm umferðir.