Fotbolti.net
20.09.26 - 11:57
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarliðin í enska: Þrjár breytingar hjá Liverpool - Ndiaye kemur inn í stað Foden

Alexis Mac Allister byrjaði ekki síðasta deildarleik en er nú kominn aftur í liðið

Alexis Mac Allister byrjaði ekki síðasta deildarleik en er nú kominn aftur í liðið

Canon

Mynd: EPA

Þrír leikir í 5. umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefjast klukkan 13:00 í dag.
Andoni Iraola snýr aftur á sinn gamla heimavöll þegar Liverpool heimsækir Bournemouth.

Hann gerir þrjár breytingar frá markalausa jafnteflinu gegn Fulham í síðasta deildarleik. Cody Gakpo, Alexis Mac Allister og Milos Kerkez koma allir inn fyrir Victor Munoz, Ryan Gravenberch og Kostas Tsimikas.

Iliman Ndiaye er í byrjunarliði Manchester City sem tekur á móti Sunderland á Etihad-leikvanginum. Hann kemur inn í stað Phil Foden sem tekur út leikbann eftir rauða spjaldið í grannaslagnum gegn Manchester United í síðustu umferð. Thomas Meunier byrjar hjá Sunderland.

Daniel Farke, stjóri Leeds, gerir engar breytingar á liðinu sem vann 4-1 sigur á Newcastle í síðustu umferð, en mótherjinn í dag er Sambandsdeildarmeistarar Crystal Palace.

Pierre Sage gerir á meðan tvær breytingar á liði Palace. Takehiro Tomiyasu og Jaydee Canvot koma inn fyrir Axel Disasi og Honest Ahanor.

Bournemouth: Petrovic, Smith, Hill, Silva, Truffert, Adams, Scott, Rayan, Christie, Tavernier, Evanilson

Liverpool: Alisson, Araújo, Jacquet, van Dijk, Kerkez, Szoboszlai, Mac Allister, Wirtz, Barcola, Isak, Gakpo



Man City: Donnarumma, Nunes, Dias, Guehi, Gvardiol, Anderson, Fernandez, Ndiaye, Semenyo, Cherki, Haaland.

Sunderland: Roefs, Meunier, Mukiele, Ballard, Danso, Methalie, Sadiki, Le Fee, Xhaka, Angulo, Brobbey.



Leeds: Trafford, Justin, Elvedi, Muharemovic, Bogle, Stach, Ampadu, Tanaka, Gudmundsson, Calvert-Lewin, Okafor

Crystal Palace: Benítez, Canvot, Richards, Tomiyasu, Khalaili, Timber, Wharton, Mitchell, Kamada, Yéremy Pino, Larsen
Iliman Ndiaye kemur inn í lið Man City í stað Phil Foden

Iliman Ndiaye kemur inn í lið Man City í stað Phil Foden

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City4+612
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Everton5+39
6Leeds4+48
7Hull City5+28
8Newcastle508
9Chelsea5-27
10Liverpool4+26
11Ipswich Town5-46
12Nott. Forest5-15
13Man Utd404
14Sunderland4-24
15Aston Villa5-54
16Bournemouth4-13
17Crystal Palace4-53
18Coventry5-93
19Tottenham5-62
20Fulham4-31
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.