20.09.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Carrick hefur trú á VAR þrátt fyrir mistökin

Mynd: EPA

Mynd: Skjáskot

Mynd: EPA
Michael Carrick þjálfari Manchester United var afar vonsvikinn eftir tap í grannaslagnum gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

TENGT EFNI
Carrick: Fólk á skrifstofum með alla þessa skjái
Erling Haaland skoraði sigurmark leiksins sem átti aldrei að standa vegna rangstöðu. Dómarasambandið hefur viðurkennt mistök og beðist afsökunar og er Carrick ekki búinn að missa trú á VAR-kerfinu þrátt fyrir mistökin.
„Svona hlutir geta gerst. Þetta eru stór mistök en ég hef enn trú á VAR-kerfinu. Þetta er kerfið sem við notumst við og erum ennþá að fullkomna," sagði Carrick á fréttamannafundi fyrir leik Man Utd gegn Fulham sem verður leikinn í dag.
Howard Webb er yfirmaður dómaramála í ensku úrvalsdeildinni og fékk hann mikla gagnrýni fyrir dómgæsluna í Manchesterslagnum. Hann baðst afsökunar innan við þriggja klukkustunda eftir atvikið en Carrick segir afsökunarbeiðnina ekki gera mikið.
„Afsökunarbeiðnin þýðir ekki mikið. Ég kann að meta að þeir viðurkenna mistök, svona getur gerst. Þetta var mjög mikilvæg ákvörðun sem breytti útkomu leiksins."

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 4 | +6 | 12 |
| 2 | Arsenal | 5 | +4 | 12 |
| 3 | Brighton | 5 | +11 | 10 |
| 4 | Brentford | 5 | +6 | 9 |
| 5 | Everton | 5 | +3 | 9 |
| 6 | Leeds | 4 | +4 | 8 |
| 7 | Hull City | 5 | +2 | 8 |
| 8 | Newcastle | 5 | 0 | 8 |
| 9 | Chelsea | 5 | -2 | 7 |
| 10 | Liverpool | 4 | +2 | 6 |
| 11 | Ipswich Town | 5 | -4 | 6 |
| 12 | Nott. Forest | 5 | -1 | 5 |
| 13 | Man Utd | 4 | 0 | 4 |
| 14 | Sunderland | 4 | -2 | 4 |
| 15 | Aston Villa | 5 | -5 | 4 |
| 16 | Bournemouth | 4 | -1 | 3 |
| 17 | Crystal Palace | 4 | -5 | 3 |
| 18 | Coventry | 5 | -9 | 3 |
| 19 | Tottenham | 5 | -6 | 2 |
| 20 | Fulham | 4 | -3 | 1 |