Fotbolti.net
20.09.26 - 11:25
Brynjar Ingi Erluson

Carrick kemur ungu strákunum til varnar - „Myndi ekki einblína sérstaklega á þá“

Leny Yoro

Leny Yoro

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, stjóri Manchester United, hefur komið ungu varnarmönnunum Leny Yoro og Ayden Heaven til varnar eftir 3-2 tapið gegn Brighton í deildabikarnum í vikunni og segir þá eiga mikla framtíð fyrir sér.
Ungu mennirnir Leny Yoro og Ayden Heaven voru í vörn United í leiknum.

United komst í 2-0 forystu en síðan hrundi allt og Brighton kom til baka og skaut sér áfram í næstu umferð.

Heaven var slakur í fyrsta marki Brighton og þá voru þeir báðir illa staðsettir þegar liðið jafnaði. Yoro fór síðan aðeins of geyst fram völlinn og tapaði einvígi sem leiddi til þriðja marksins.

„Mér fannst þeir byrja leikinn mjög vel, eins og raunar allt liðið, en þetta snýst ekki bara um þá. Þeir munu læra af mismunandi reynslu og mér finnst þeir hafa staðið sig vel.“

„Þetta eru tveir ungir leikmenn sem eru á mjög góðum stað og eiga bjarta framtíð fyrir sér. Því miður koma tímabil í fótboltanum þar sem allt gengur vel og svo önnur þar sem maður þarf að læra af því þegar hlutirnir ganga ekki eins vel. Ég myndi því alls ekki einblína sérstaklega á þá,“
sagði Carrick.

Manchester United keypti Yoro frá Lille árið 2024 og var hann þá talinn einn efnilegasti varnarmaður Frakklands. Hann hefur þó ekki enn náð að sýna sitt allra besta í United-treyjunni, en Carrick hefur litlar áhyggjur af honum.

„Ég hef engar áhyggjur af Leny. Hann á stórkostlega framtíð fyrir sér og möguleikarnir eru miklir. Sumir leikmenn eru tilbúnir 18 ára gamlir til að standa sig á þessu stigi, en hjá öðrum gerist það ekki fyrr en þeir eru 22, 23 eða 24 ára og fara þá virkilega að þróa leik sinn.“

„Það sem við verðum sérstaklega að gæta að, og það sem ég mun alls ekki gera, er að taka skyndiákvarðanir um leikmenn út frá einum leik, einum hálfleik eða einu augnabliki í leik. Við höfum mikla trú á Leny,“
sagði Carrick í lokin.
Ayden Heaven spilaði við hlið Yoro

Ayden Heaven spilaði við hlið Yoro

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.