20.09.26 - 13:01
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Mistök fyrrum varnarmanns Liverpool kostuðu WBA í grannaslag

Fer Lopez þakkaði fyrir gjöfina frá Nat Phillips

Mynd: EPA

Fer Lopez þakkaði fyrir gjöfina frá Nat Phillips

Mynd: EPA
Wolves 1 - 0 West Brom
1-0 Fer Lopez ('50 )
1-0 Fer Lopez ('50 )
Úlfarnir unnu sinn annan deildarleik í röð þegar liðið marði 1-0 sigur á WBA í grannaslag í ensku B-deildinni í Wolverhampton í dag.
Heimamenn réðu lögum og lofum í fyrri hálfleik og sköpuðu sér fjölda færa, en Max O'Leary hélt WBA inni í leiknum. Gestirnir gerðu hins vegar lítið sem ekkert fram á við og staðan því markalaus í hálfleik.
Eitthvað hlaut að gefa sig og Úlfarnir fengu óvænta gjöf snemma í síðari hálfleik. Nat Phillips, fyrrum leikmaður Liverpool, átti skelfilega sendingu til baka sem Fer Lopez komst inn í og setti boltann í netið.
WBA færði sig aðeins framar eftir markið en náði ekki að skapa sér nægilega góð færi og Úlfarnir héldu út og fögnuðu 1-0 sigri.
Úlfarnir eru í 4. sæti með 14 stig, en WBA situr í sætinu fyrir neðan.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Swansea | 8 | +7 | 17 |
| 2 | West Ham | 8 | +11 | 15 |
| 3 | Middlesbrough | 8 | +4 | 15 |
| 4 | West Brom | 8 | +3 | 15 |
| 5 | QPR | 8 | +3 | 13 |
| 6 | Stoke City | 8 | +1 | 13 |
| 7 | Bristol City | 8 | -1 | 13 |
| 8 | Wolves | 7 | +4 | 12 |
| 9 | Charlton Athletic | 8 | -3 | 12 |
| 10 | Birmingham | 8 | +1 | 11 |
| 11 | Millwall | 8 | 0 | 11 |
| 12 | Lincoln City | 8 | -1 | 11 |
| 13 | Southampton | 8 | +9 | 10 |
| 14 | Wrexham | 8 | -3 | 10 |
| 15 | Norwich | 7 | 0 | 9 |
| 16 | Blackburn | 8 | 0 | 9 |
| 17 | Sheffield Utd | 8 | -2 | 9 |
| 18 | Portsmouth | 7 | -1 | 8 |
| 19 | Watford | 8 | -3 | 8 |
| 20 | Cardiff City | 8 | -2 | 7 |
| 21 | Bolton | 7 | -5 | 7 |
| 22 | Derby County | 8 | -7 | 5 |
| 23 | Preston NE | 8 | -7 | 4 |
| 24 | Burnley | 8 | -8 | 4 |