Fotbolti.net
20.09.26 - 16:01
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Nýliðarnir unnu eftir mikinn markaleik

Atsuki Ito skoraði sigurmarkið stuttu eftir að hafa komið inn á sem varamaður

Atsuki Ito skoraði sigurmarkið stuttu eftir að hafa komið inn á sem varamaður

Canon

Mynd: Bolton Wanderers

Norwich 3 - 4 Bolton
1-0 Mohamed Toure ('5 )
1-1 Thierry Gale ('8 )
2-1 Ruairi McConville ('19 )
2-2 Gaizka Larrazabal ('42 )
2-3 Sam Dalby ('47 )
3-3 Jack Stacey ('61 )
3-4 Atsuki Ito ('72 )
Nýliðar Bolton Wanderers unnu Norwich City, 4-3, í svakalegum leik í ensku B-deildinni í dag.

Bolton vann sér sæti aftur í B-deildinni í gegnum umspil C-deildarinnar í vor.

Liðið vann fyrsta leik sinn eftir endurkomuna en gekk síðan í gegnum erfiðar vikur. Nú virðist þó allt vera að færast í rétta átt eftir annan sigurinn í röð.

Norwich komst tvisvar yfir í leiknum. Mohamed Toure skoraði á 5. mínútu en Thierry Gale jafnaði aðeins þremur mínútum síðar. Ruairi McConville kom Norwich aftur yfir, áður en Gaizka Larrazabal svaraði undir lok fyrri hálfleiks.

Sam Dalby kom gestunum í forystu snemma í síðari hálfleik en Jack Stacey jafnaði fyrir heimamenn.

Atsuki Ito, sem kom til Bolton frá Gent í sumar, kom inn á sem varamaður á 70. mínútu og skoraði sigurmarkið aðeins tveimur mínútum síðar.

Þetta var annar leikurinn í röð sem Norwich tapar 4-3 og um leið annar sigur Bolton í röð. Bolton er í 15. sæti með tíu stig en Norwich í 17. sæti með níu.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough17+1435
2Stoke City17+835
3Wolves17+1234
4Birmingham17+1532
5West Brom17+1032
6Southampton17+1628
7QPR17+728
8Swansea17+327
9Sheffield Utd17+626
10Portsmouth17+326
11Norwich17+925
12Blackburn17025
13West Ham17+1324
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic17-720
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall17-618
19Bolton17-1118
20Watford17-1515
21Lincoln City17-1615
22Preston NE17-1312
23Burnley17-1111
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.