20.09.26 - 16:28
Brynjar Ingi Erluson
Daníela lagði upp tvö og nýliðarnir áfram í titilbaráttu - Guðný með mikilvæga stoðsendingu

Daníela Dögg og Álasund hafa verið að gera ótrúlega hluti

Mynd: Heimasíða Álasunds

Endurkoma Guðnýjar fer vel af stað

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hildur Antonsdóttir og stöllur hennar í Newcastle United eru með fullt hús stiga á toppi ensku B-deildarinnar eftir 4-1 sigur á Sheffield United í dag.
Landsliðskonan kom til Newcastle frá Madrid í sumar og ætlar enska félagið sér greinilega stóra hluti.
Hildur kom inn af bekknum í síðari hálfleik í þægilegum sigri liðsins en Newcastle hefur unnið alla þrjá leiki sína á tímabilinu til þessa.
Guðný Árnadóttir lagði upp mikilvægt jöfnunarmark Kristianstad í 2-2 jafntefli gegn Piteå í sænsku úrvalsdeildinni.
Alexandra Jóhannsdóttir byrjaði hjá Kristianstad en Guðný og Elísa Lana Sigurjónsdóttir komu inn á í síðari hálfleik. Þegar um fjórar mínútur voru eftir lagði Guðný upp fyrir Sadie Sider-Echenberg sem skoraði sitt annað mark í leiknum.
Kristianstad er í 5. sæti deildarinnar með 29 stig en Nik Chamberlain stýrir liðinu.
Sigdís Eva Bárðardóttir kom inn á sem varamaður í 2-1 sigri Norrköping á Rosengård. Þetta var öflugur sigur hjá Norrköping sem er í næstneðsta sæti með 16 stig, aðeins einu stigi á eftir Rosengård.
Daníela Dögg Guðnadóttir átti frábæra innkomu af bekknum í 4-1 sigri Álasunds á Molde í norsku úrvalsdeildinni.
Álasund, sem er nýliði, hefur komið verulega á óvart á tímabilinu og er í harðri titilbaráttu við Brann.
Daníela kom inn af bekknum í stöðunni 1-1 og lagði upp tvö mörk sem hjálpuðu Álasundi að tryggja sér stigin þrjú. Liðið er í 2. sæti með 40 stig, fjórum stigum frá toppnum.
Sóley Edda Ingadóttir kom inn af bekknum hjá Molde sem er í 7. sæti með 18 stig.