20.09.26 - 15:03
Brynjar Ingi Erluson
England: Þrenna Brobbey dugði ekki gegn Man City - Isak hetja Liverpool

Antoine Semenyo skoraði tvö og lagði upp eitt

Mynd: EPA

Brian Brobbey skoraði þrennu

Mynd: EPA

Alexander Isak skoraði sigurmark Liverpool

Mynd: EPA

Daniel Farke og lærisveinar hans í Leeds eru áfram taplausir

Manchester City vann Sunderland í ótrúlegum átta marka leik á Etihad-leikvanginum í ensku úrvalsdeildinni í dag á meðan Alexander Isak var hetja Liverpool í 1-0 sigri liðsins á erfiðum útivelli Bournemouth.
Leikur Manchester City og Sunderland var hin mesta skemmtun og rigndi mörkum.
Allt byrjaði á 9. mínútu þegar City fékk aukaspyrnu hægra megin við teiginn. Enzo Fernandez leit út fyrir að ætla að setja boltann inn á teiginn en sá að Robin Roefs hafði skilið eftir pláss við nærstöngina.
Enzo stýrði boltanum framhjá veggnum og upp í nærhornið. Roefs las aðstæðurnar illa og gestirnir refsuðu. Sunderland kom þó til baka og Brian Brobbey jafnaði þegar Enzo le Fee stakk boltanum á milli varnarmanna og inn á Brobbey sem lyfti honum í löppina á Gianluigi Donnarumma og þaðan í netið.
Rayan Cherki kom City aftur yfir eftir hálftímaleik eftir góða pressu heimamanna. Antoine Semenyo lagði boltann fyrir Cherki sem hikaði aðeins, opnaði sér pláss og lét síðan skotið ríða af í vinstra hornið.
Vörn City svaf hins vegar á verðinum því aðeins þremur mínútum síðar jafnaði Brobbey aftur. Boltanum var laumað inn á Thomas Meunier á meðan City reyndi að beita rangstöðugildru. Meunier var hins vegar réttstæður og lagði boltann fyrir Brobbey sem skoraði af öryggi.
Semenyo kom City í forystu í þriðja sinn á 43. mínútu með skoti úr teignum og Erling Haaland fékk síðan dauðafæri til að tvöfalda forystuna undir lok hálfleiksins, en setti boltann framhjá fyrir opnu marki.
Svakalegur fyrri hálfleikur og nóg af mörkum, en sjötta mark leiksins kom tólf mínútum inn í síðari hálfleik og var Semenyo aftur á ferðinni. Hann var þar með kominn með tvö mörk og stoðsendingu.
Sunderland neitaði þó að gefast upp og Brobbey fullkomnaði þrennuna aðeins tveimur mínútum síðar. Langur bolti kom inn á Nilson Angulo sem potaði honum framhjá Donnarumma og til Brobbey sem þurfti ekki að hafa mikið fyrir markinu.
City var í alls konar vandræðum. Ruben Dias var meðal annars nálægt því að skora sjálfsmark þegar hann potaði boltanum í átt að eigin marki eftir að Donnarumma hafði hlaupið út, en snertingin var ekki nægilega föst og tókst Dias að bjarga á línu á síðustu stundu.
Heimamönnum létti þegar Haaland tókst loksins að gera út um leikinn með fimmta marki City og sínu fimmta deildarmarki á tímabilinu.
Stórfurðulegur 5-3 sigur hjá Manchester City, en sigur engu að síður. Liðið er áfram með fullt hús stiga eftir fimm umferðir. Sunderland getur hins vegar verið svekkt að fá ekkert út úr leiknum og er í 14. sæti með fjögur stig.
Isak hetjan í Bournemouth
Liverpool náði í sinn annan deildarsigur á tímabilinu þegar liðið vann sterkan 1-0 útisigur á Bournemouth.
Þetta var hörkuleikur sem gat dottið á hvorn veginn sem var enda hefur Bournemouth reynst mörgum erfitt á heimavelli síðustu ár.
Dominik Szoboszlai átti tvær aukaspyrnur rétt yfir markið og Bradley Barcola fékk fínt færi í fyrri hálfleiknum. Hinum megin átti Alisson magnaða vörslu og Jeremy Jacquet var frábær í miðri vörninni og kom til bjargar á ögurstundu.
Eina mark leiksins kom á 57. mínútu. Cody Gakpo keyrði upp hægra megin og kom boltanum inn á teiginn í átt að Florian Wirtz sem var í baráttu við varnarmann. Þaðan skoppaði boltinn til Isak sem skoraði af öryggi. Svíinn kominn í gang hjá Liverpool.
Eftir markið fór Liverpool að halda í fenginn hlut og gerði það vel. Lewis Koumas fékk þó fínt færi til að bæta við öðru í uppbótartíma eftir undirbúning Victor Munoz, en skaut beint í hendur Djordje Petrovic.
Fleira gerðist ekki og Liverpool fagnaði sigrinum. Liðið er áfram taplaust og komið með níu stig eftir sex leiki í 6. sæti, sex stigum frá toppnum. Bournemouth er með þrjú stig í 17. sæti.
Leeds og Crystal Palace gerðu þá markalaust jafntefli á Elland Road.
Staðan var markalaus í hálfleik en Palace fór ánægðara inn í leikhléið. Snemma í síðari hálfleik kom Tyrick Mitchell boltanum í netið, en markið var dæmt af vegna rangstöðu í aðdragandanum.
Ismaila Sarr fékk síðan tækifæri til að tryggja Palace stigin þrjú, en Tarik Mharemovic kom frábærlega til varnar og sá til þess að Leeds héldi áfram taplaust á tímabilinu.
Leeds er í 5. sæti með níu stig en Palace í 15. sæti með fjögur stig.
Bournemouth 0 - 1 Liverpool
0-1 Alexander Isak ('57 )
Leeds 0 - 0 Crystal Palace
Manchester City 5 - 3 Sunderland
1-0 Enzo Fernandez ('9 )
1-1 Brian Brobbey ('12 )
2-1 Rayan Cherki ('29 )
2-2 Brian Brobbey ('33 )
3-2 Antoine Semenyo ('43 )
4-2 Antoine Semenyo ('57 )
4-3 Brian Brobbey ('59 )
5-3 Erling Haaland ('81 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 5 | +7 | 15 |
| 2 | Arsenal | 5 | +4 | 12 |
| 3 | Brighton | 5 | +11 | 10 |
| 4 | Brentford | 5 | +6 | 9 |
| 5 | Everton | 5 | +3 | 9 |
| 6 | Leeds | 5 | +3 | 8 |
| 7 | Hull City | 5 | +2 | 8 |
| 8 | Newcastle | 5 | 0 | 8 |
| 9 | Liverpool | 5 | +2 | 7 |
| 10 | Chelsea | 5 | -2 | 7 |
| 11 | Ipswich Town | 5 | -4 | 6 |
| 12 | Crystal Palace | 5 | -4 | 6 |
| 13 | Nott. Forest | 5 | -1 | 5 |
| 14 | Man Utd | 4 | 0 | 4 |
| 15 | Bournemouth | 5 | -1 | 4 |
| 16 | Sunderland | 5 | -3 | 4 |
| 17 | Aston Villa | 5 | -5 | 4 |
| 18 | Coventry | 5 | -9 | 3 |
| 19 | Tottenham | 5 | -6 | 2 |
| 20 | Fulham | 4 | -3 | 1 |