Fotbolti.net
20.09.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Evrópa í dag - Slegist um Madríd og PSG þarf sigur í fjandslag

Evrópa í dag - Slegist um Madríd og PSG þarf sigur í fjandslag
Canon

Mynd: EPA

Það er nóg um að vera í evrópska boltanum í dag og í kvöld þar sem stórleikir eru á dagskrá í öllum sterkustu deildum álfunnar.
Stærsti leikurinn er á Spáni þegar Atlético Madrid tekur á móti Real Madrid í hatrömmum borgarslag. Real er með 15 stig eftir 6 fyrstu umferðirnar á nýju tímabili, tveimur stigum meira heldur en Atlético.

Það ríkir mikil eftirvænting fyrir þennan slag, en þó ekki meiri heldur en fyrir viðureign Marseille og Paris Saint-Germain í Frakklandi. PSG hefur farið furðu illa af stað á nýju deildartímabili og er liðið aðeins búið að ná í fimm stig eftir fjórar umferðir.

Franska risaveldið, sem hefur unnið Meistaradeildina síðustu tvö ár í röð, hafði betur gegn Brest með einu marki gegn engu í síðustu umferð og heimsækir fjandlið sitt Marseille í kvöld. Marseille hefur líka farið illa af stað á nýju tímabili og eru lærlingar Bruno Génésio aðeins komnir með þrjú stig - tveimur stigum minna heldur en PSG.

Í Þýskalandi fer stórleikur dagsins fram í Leverkusen, þar sem Bayer tekur á móti RB Leipzig.

Þá eru nokkrir Íslendingar sem munu líklegast koma við sögu í dag. Hákon Arnar Haraldsson er lykilmaður í sterku liði Lille sem getur jafnað Mónakó á stigum í toppsæti frönsku deildarinnar. Lille heimsækir OGC Nice í dag.

Á Spáni kíkja Orri Steinn Óskarsson og félagar í Real Sociedad til Valencia en Orri Steinn er kominn með eitt mark í sex leikjum á tímabilinu. Sociedad hefur ekki farið vel af stað í La Liga og er með 7 stig eftir 6 umferðir.

Að lokum eiga Cole Campbell og félagar í Elversberg útileik við Schalke í þýsku deildinni. Bandaríski landsliðsmaðurinn Campbell er í leikmannahópi Elversberg sem eru nýliðar í efstu deild en hafa farið vel af stað á tímabilinu og eiga sex stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar. Eini tapleikur liðsins kom gegn Þýskalandsmeisturum Bayern um síðustu helgi, lokatölur 1-2 í Spiesen-Elversberg.

La Liga
12:00 Getafe - Malaga
14:15 Atletico Madrid - Real Madrid
16:30 Deportivo La Coruna - Real Betis
16:30 Villarreal - Levante
19:00 Valencia - Real Sociedad

Ligue 1
13:00 Auxerre - Brest
15:15 Nice - Lille
18:45 Marseille - PSG

Bundesliga
13:30 Leverkusen - RB Leipzig
15:30 Schalke 04 - Elversberg
17:30 Paderborn - Hoffenheim
Evrópa í dag - Slegist um Madríd og PSG þarf sigur í fjandslag
Canon

Mynd: EPA

Evrópa í dag - Slegist um Madríd og PSG þarf sigur í fjandslag
Canon

Mynd: EPA

Evrópa í dag - Slegist um Madríd og PSG þarf sigur í fjandslag
Canon

Mynd: EPA

Evrópa í dag - Slegist um Madríd og PSG þarf sigur í fjandslag
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Barcelona7+2421
2Real Madrid6+1115
3Betis6+215
4Atletico Madrid6+813
5Sevilla7+113
6Alaves7+511
7Deportivo6+29
8Athletic6+18
9Vallecano7-58
10Osasuna7-78
11Celta7+27
12Espanyol707
13Real Sociedad6-57
14Racing Santander7-107
15Villarreal6-15
16Levante5-25
17Getafe6-45
18Elche7-65
19Valencia6-84
20Malaga6-83
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.