20.09.26 - 11:54
Brynjar Ingi Erluson
Gerrard bendir á vandamál Tottenham - „Hafa fulla ástæðu til að vera áhyggjufullir“

Tottenham hefur ekki enn unnið leik í deildinni

Mynd: EPA

Sparkspekingurinn Steven Gerrard segir stuðningsmenn Tottenham hafa fulla ástæðu til að hafa verulegar áhyggjur af stöðu liðsins eftir frammistöðuna í síðustu leikjum.
Tottenham hefur enn ekki unnið deildarleik á tímabilinu og tókst ekki að skora í fyrstu fjórum leikjunum.
Liðið kom boltanum loksins tvisvar í netið gegn Aston Villa í gær, en mörkin komu of seint og Villa tók stigin þrjú.
Lundúnafélagið fór mikinn á leikmannamarkaðnum í sumar og lagði mesta áherslu á að styrkja miðsvæðið.
Í sóknina komu einnig leikmenn á borð við Omar Marmoush og Savio, auk Mykhailo Mudryk sem er enn nokkuð óskrifað blað eftir langt hlé frá fótbolta. Hann er nú kominn á meiðslalistann og verður frá næstu vikurnar.
„Tottenham hefur tekist að styrkja nokkrar stöður. Miðjan er orðin sterkari með Tonali, Fernandes og Bentancur. Þetta er mjög sterk miðja og svo eru þeir með Conor Gallagher sem átti líklega skilið að byrja þennan leik. Mér finnst miðjan því ekki vera stóra vandamálið,“ sagði Gerrard.
Varnarleikurinn hefur hins vegar ekki hrifið Gerrard og hann segist ekki alveg skilja af hverju félagið sótti ekki hreinræktaðan markaskorara.
„Liðið er hins vegar svolítið brothætt þarna aftast og fær á sig allt of mörg mörk. Ef miðverðirnir þínir ráða ekki við langa bolta þá lendirðu í vandræðum og það er eitthvað sem þarf að laga.“
„Mér finnst Tottenham hafa bætt sig á nokkrum sviðum, en stóra vandamálið er enn í sókninni og skorturinn á mörkum. Þeir eru ekki með nógu skilvirkan framherja eða alvöru markaskorara. Ég segi þetta af virðingu því þeir eru með góða og spennandi sóknarmenn, en hver á að skora 20 mörk í þessu liði?“
„Þeir sem sjá um leikmannakaupin og tóku þessar ákvarðanir þurfa að spyrja sig af hverju þeir fengu ekki leikmann sem getur skorað 20 mörk á tímabili. Ef þú ert ekki með slíkan leikmann og ert á sama tíma að fá á þig mörk þá myndi ég, ef ég væri stuðningsmaður Tottenham, hafa verulegar áhyggjur.“
„Það er tvennt í þessu. Annað hvort heldurðu hreinu og heldur þér þannig í öruggri stöðu á töflunni eða þú ert með stórkostlegan markaskorara í liðinu eins og Harry Kane var í mörg ár. Slíkir leikmenn skora fullt af mörkum og halda þér í efri hluta töflunnar. Ef þú ert svona brothættur aftast og ert ekki með slíkan framherja þarftu að fara varlega,“ sagði Gerrard.