Fotbolti.net
20.09.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Ítalía í dag - Spenna í Flórens og Tórínó

Ítalía í dag - Spenna í Flórens og Tórínó
Canon

Mynd: EPA

Síðustu leikir ítölsku deildarinnar fyrir þriggja vikna landsleikjahlé fara fram í dag og í kvöld og eru nokkur stórlið sem mæta til leiks.
Napoli, sem endaði í öðru sæti á síðustu leiktíð, heimsækir áhugavert lið Fiorentina sem hefur sýnt batamerki eftir þjálfaraskipti á dögunum.

Mikael Egill Ellertsson og félagar í Genoa heimsækja svo Parma á sama tíma og lærlingar Cesc Fábregas í liði Como kíkja í heimsókn til nýliða Frosinone sem hafa farið vel af stað.

Como getur jafnað toppliðin þrjú á stigum með sigri enda er liðið komið með 10 stig eftir 4 umferðir.

Juventus, sem tapaði óvænt gegn Sassuolo um síðustu helgi, tekur svo á móti Atalanta í afar spennandi slag. Atalanta er búið að tapa síðustu tveimur deildarleikjum sínum í röð undir stjórn Maurizio Sarri.

AC Milan fær Lecce að lokum í heimsókn í kvöldleiknum. Lærlingar Rúben Amorim eru taplausir enn sem komið er, með 8 stig eftir 4 umferðir.

Leikir dagsins
10:30 Fiorentina - Napoli
13:00 Parma - Genoa
13:00 Frosinone - Como
16:00 Juventus - Atalanta
18:45 Milan - Lecce
Ítalía í dag - Spenna í Flórens og Tórínó
Canon

Mynd: EPA

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter6+1016
2Lazio6+716
3Roma6+1114
4Cagliari6+313
5Milan6+612
6Juventus6+411
7Como6+311
8Napoli6+410
9Frosinone6+210
10Atalanta609
11Sassuolo608
12Torino6-27
13Lecce6-66
14Bologna6-25
15Udinese6-44
16Monza6-64
17Genoa6-64
18Parma6-64
19Fiorentina6-74
20Venezia6-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.