Fotbolti.net
20.09.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Næsti Busquets semur við Barcelona

Næsti Busquets semur við Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Varnartengiliðurinn efnilegi Marc Bernal er búinn að semja við Spánarmeistara Barcelona um nýjan samning sem inniheldur launahækkun.
Nýr samningur Bernal mun gilda til 2031, tveimur árum lengur en núverandi samningur, og fær hann umtalsverða launahækkun.

Bernal kom við sögu í 22 deildarleikjum með Börsungum á síðustu leiktíð þrátt fyrir að hafa aðeins verið 18 ára gamall. Hann hefur í heildina tekið þátt í 43 keppnisleikjum með félaginu og komið með beinum hætti að 8 mörkum þrátt fyrir að spila aftarlega á vellinum.

Fyrir tveimur árum var Bernal 17 ára gamall og byrjaður að taka sín fyrstu skref með meistaraflokki Barca. Hann sleit krossband í ágúst 2024 og var frá keppni í eitt ár en hefur náð sér vel eftir þessi erfiðu meiðsli.

Hann er oft á tíðum kallaður næsti Sergio Busquets vegna líkinda þeirra á vellinum. Busquets er goðsögn hjá Barcelona og starfar í þjálfarateymi unglingaliðsins þessa dagana eftir að hafa lagt takkaskóna á hilluna.
Næsti Busquets semur við Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.