Fotbolti.net
20.09.26 - 16:17
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Atlético vann Madrídarslaginn - Huijsen sá rautt

Alex Grimaldo fagnaði með því að taka golfsveifluna

Alex Grimaldo fagnaði með því að taka golfsveifluna

Canon

Mynd: EPA

Atlético Madríd vann nágranna sína í Real Madrid, 2-1, í 7. umferð La Liga á Metropolitano-leikvanginum í Madríd í dag.
Real Madrid hafði farið vel af stað undir stjórn Jose Mourinho og unnið fimm leiki en aðeins tapað einum.

Spennan lét ekki á sér standa og var mikið harka í fyrri hálfleiknum. Spjöldin fóru á loft og minna fór fyrir skemmtilegum fótbolta.

Í hálfleik fengu svo tveir úr þjálfarateymum liðanna að líta rauða spjaldið.

Það dró síðan til tíðinda snemma í síðari hálfleik þegar Dean Huijsen reif Giuliano Simeone niður í teignum. Vítaspyrna var dæmd og Huijsen rekinn af velli.

Alex Grimaldo skoraði úr vítaspyrnunni og sex mínútum síðar bætti kanadíski framherjinn Jonathan David öðru marki við eftir stoðsendingu frá Simeone.

Atlético fékk síðan færi til að bæta við. Thibaut Courtois varði frábærlega frá Cuti Romero eftir hornspyrnu og í kjölfarið bjargaði Ibrahima Konate á línu.

Stundarfjórðungi fyrir leikslok slapp Yan Diomande í gegn og lét vaða, en Jan Oblak sá við honum.

Real Madrid náði að klóra í bakkann á 89. mínútu með skalla Antonio Rüdiger eftir aukaspyrnu Bernardo Silva, en tíu menn Real komust ekki lengra og lokatölur 2-1 fyrir Atlético.

Mikill skellur fyrir Real sem er, líkt og Atlético, fimm stigum á eftir toppliði Barcelona.

Atletico Madrid 2 - 1 Real Madrid
1-0 Alejandro Grimaldo ('53 , víti)
2-0 Jonathan David ('59 )
2-1 Antonio Rudiger ('89 )
Rautt spjald: Dean Huijsen, Real Madrid ('50)

Getafe 1 - 0 Malaga
1-0 Ivan Azon ('85 )
Spánn: Atlético vann Madrídarslaginn - Huijsen sá rautt
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona8+2724
2Atletico Madrid8+1019
3Betis8+519
4Real Madrid8+1118
5Sevilla8+114
6Real Sociedad8-313
7Alaves8+411
8Deportivo8+110
9Celta8+28
10Athletic6+18
11Villarreal808
12Espanyol808
13Vallecano7-58
14Getafe8-68
15Racing Santander8-108
16Osasuna8-108
17Levante7-46
18Elche8-66
19Valencia8-95
20Malaga8-94
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.