Fotbolti.net
20.09.26 - 13:22
Brynjar Ingi Erluson

Stefán skoraði og sendi stuðningsmönnum kossa

Stefán Teitur skoraði fyrsta deildarmark sitt á tímabilinu

Stefán Teitur skoraði fyrsta deildarmark sitt á tímabilinu

Canon

Mynd: Hannover 96

Stefán Teitur Þórðarson, fyrirliði Hannover í þýsku B-deildinni, var á skotskónum í 2-1 sigri liðsins á Bochum í dag.
Það hefur ekki gengið nógu vel hjá Hannover í byrjun leiktíðar eftir öflugt síðasta tímabil.

Þjálfarinn var rekinn á dögunum og Sandro Wagner tók við keflinu, en leikmenn liðsins eru staðráðnir í að koma því aftur á réttan kjöl.

Stefán, sem var gerður að fyrirliða Hannover í sumar, kom liðinu yfir á 24. mínútu eftir hornspyrnu. Eftir darraðadans í teignum fékk hann boltann fyrir opnu marki, setti hann í netið og fagnaði með því að senda stuðningsmönnum kossa.

Hann kom síðan við sögu í öðru marki liðsins. Stefán komst í gegn en markvörðurinn sá við honum og aðeins nokkrum sekúndum síðar skoraði Marcel Harter annað mark Hannover.

Bochum minnkaði muninn í síðari hálfleik en Hannover hélt út og náði í sinn annan deildarsigur á tímabilinu. Liðið er komið með sjö stig eftir sex leiki og situr nú í 10. sæti.

Gísli Gottskálk Þórðarson var ekki með St. Pauli í 1-1 jafnteflinu gegn Cottbus. Hann kom til félagsins frá Lech Poznan en hefur ekki enn þreytt frumraun sína vegna meiðsla. St. Pauli er í 8. sæti með sjö stig.

Bjarni Mark Antonsson og Oskar Sverrisson voru báðir í liði Trelleborg sem vann 1-0 sigur á Tvaaker í suðurriðli sænsku C-deildarinnar. Trelleborg er á toppnum með 48 stig og sex stiga forskot á næsta lið.

Hólmbert Aron Friðjónsson byrjaði hjá Gwangju sem gerði 2-2 jafntefli við topplið Jeonbuk í suður-kóresku deildinni. Gwangju er á botninum með 15 stig en Jeonbuk fjarlægðist enn frekar titilbaráttuna með úrslitunum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.