Fotbolti.net
20.09.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson

Þriðja deildarmark Stefáns - Guðlaugur Victor átti stóran þátt í endurkomu gegn meisturunum

Stefán Ingi skoraði þriðja deildarmark sitt

Stefán Ingi skoraði þriðja deildarmark sitt

Canon

Mynd: EPA

Stefán Ingi Sigurðarson skoraði sitt þriðja deildarmark á tímabilinu þegar Go Ahead Eagles og NEC Nijmegen gerðu 1-1 jafntefli í hollensku úrvalsdeildinni í dag.
Þrír fyrrum Blikar voru í leikmannahópnum. Stefán og Alfons Sampsted byrjuðu hjá Eagles en Willum Þór Willumsson, fyrrum samherji Alfonsar hjá bæði Breiðabliki og Birmingham, var á bekknum hjá Nijmegen.

Bæði mörk leiksins komu á fyrstu tíu mínútunum. Perr Schuurs, sem eitt sinn var talinn einn efnilegasti varnarmaður Hollands, kom Nijmegen yfir á 2. mínútu en Stefán jafnaði átta mínútum síðar. Góð byrjun hjá honum á tímabilinu.

Eagles er í 9. sæti með tíu stig en Nijmegen í 11. sæti með átta.

Guðlaugur Victor Pálsson reyndist sínum mönnum í Horsens mikilvægur í 2-2 jafntefli gegn AGF í dönsku úrvalsdeildinni.

Daníel Leó Grétarsson og Mikael Neville Anderson voru í byrjunarliði AGF sem komst í tveggja marka forystu, en undir lok leiks lagði Guðlaugur Victor upp fyrir Jakob Bonde sem minnkaði muninn. Heimamönnum í Horsens tókst síðan að jafna seint í uppbótartíma.

Horsens er í 6. sæti með ellefu stig en AGF, sem varð meistari á síðasta tímabili, er í næstneðsta sæti með fimm stig.

Logi Tómasson var í byrjunarliði Samsunspor sem tapaði 1-0 fyrir nýliðum Erzurumspor í tyrknesku úrvalsdeildinni. Þetta var fjórða tap Samsunspor í röð og annar leikurinn í röð þar sem liðið tapar fyrir nýliðum. Samsunspor er í 16. sæti með fjögur stig.

Hinrik Harðarson kom inn af bekknum í 5-1 tapi Egersund gegn sínum gömlu félögum í Odd í norsku B-deildinni. Breki Baxter sat allan leikinn á bekknum hjá Egersund sem er í 8. sæti með 29 stig.
Guðlaugur Victor lagði upp fyrra mark Horsens í endurkomu gegn meisturunum

Guðlaugur Victor lagði upp fyrra mark Horsens í endurkomu gegn meisturunum

Canon

Mynd: Horsens

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.