Fotbolti.net
20.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Þróttur Vogum auglýsir eftir þjálfurum

Þróttur Vogum auglýsir eftir þjálfurum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Þróttur Vogum auglýsir eftir þjálfurum fyrir yngri flokka félagsins þar sem ungum iðkendum á svæðinu fer fjölgandi.
Vogamenn vantar þjálfara í báðum kynjum fyrir 8. flokkana, auk þjálfara fyrir 7. flokk drengja og 6. flokk drengja.

Við leitum að öflugum og áhugasömum aðalþjálfurum og aðstoðarþjálfurum í ört stækkandi starf í Vogum þar sem iðkendum hefur fjölgað.

Við hvetjum öll kyn og til að sækja um.


Starfssvið:
- Umsjón með skipulagningu æfinga og leikja hjá viðkomandi flokki eða flokkum.

- Umsjón með þátttöku í mótum viðkomandi flokks eða flokka.

- Samskipti við foreldra í gegnum Sportabler.

- Samskipti við foreldraráð viðkomandi flokka vegna skipulagningar móta og/eða keppnisferða.

Menntunar- og hæfniskröfur:
-Þjálfaramenntun, reynsla eða áætlun um að mennta sig sem þjálfari skilyrði.

-Góðir samskiptahæfileikar.

-Jákvæðni, drifkraftur og frumkvæði.

-Áhugi á að takast á við nýjungar og margvísleg verkefni.

-Almenn tölvufærni og hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli.

-Hreint sakavottorð.

Við leitum að þjálfurum sem hafa gaman af því að vinna með börnum, brenna fyrir því að sjá iðkendur taka framförum og vilja taka þátt í að byggja upp góða einstaklinga innan vallar sem utan.

Við viljum skapa umhverfi þar sem iðkendur, leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar njóta sín, þróast og fá tækifæri til að stefna hærra. Íþróttamiðstöðin í Vogum, íþróttasvæðið og félagsaðstaða Þróttar er okkar annað heimili. Við leitum að þjálfurum sem vilja vera hluti af þeirri vegferð og hafa metnað til að fylgja iðkendum alla leið í meistaraflokk Þróttar eða í önnur störf innan félagsins.


Nánari upplýsingar veitir Marteinn Ægisson, [email protected].

Umsóknarfrestur er til 25. september.
Þróttur Vogum auglýsir eftir þjálfurum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þróttur Vogum auglýsir eftir þjálfurum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Þróttur Vogum auglýsir eftir þjálfurum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þróttur Vogum auglýsir eftir þjálfurum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.