Fotbolti.net
20.09.26 - 14:31
Brynjar Ingi Erluson

Unnu grannaslaginn í annað sinn á viku

Ryan Naderi og Derek McInnes fagna saman eftir leikinn

Ryan Naderi og Derek McInnes fagna saman eftir leikinn

Canon

Mynd: Rangers/X

Skoska stórliðið Rangers verður með montréttinn í Glasgow næstu mánuði eftir 1-0 sigur á nágrönnum sínum og erkifjendum í Celtic í skosku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var annar sigur Rangers á Celtic á aðeins einni viku.
Rangers vann 3-0 sigur á grönnum sínum í átta liða úrslitum deildabikarsins á dögunum og fylgdi honum eftir með öðrum sigri.

Rangers var án stuðningsmanna sinna á leiknum en liðið lét það ekki á sig fá.

Ryan Naderi skoraði sigurmarkið á 33. mínútu þegar hann hirti frákast inni í teignum og fagnaði því vel.

Markið reyndist nóg og Rangers fagnaði enn einum sigrinum. Liðið hefur nú unnið sex leiki í röð í öllum keppnum.

Rangers er í 2. sæti skosku deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir grönnum sínum eftir sjö umferðir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.