Fotbolti.net
20.10.17 - 17:08
Mist Rúnarsdóttir
Skrifar frá: Wiesbaden

Glódís: Framherjar og miðjumenn eins og brjálæðingar

Auglýsing
Byrjunarlið Íslands í dag.

Byrjunarlið Íslands í dag.

Canon

Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn

Hertz
„Þetta er ekki bara afrek í sögulegu samhengi heldur skiptir þessi leikur öllu máli fyrir okkur,\" sagði Glódís Perla Viggósdóttir varnarmaður Íslands eftir frækinn 2-3 sigur á Þýskalandi í undakeppni HM 2019 í dag.
„Nú fáum við sjálfstraust og fengum að sýna það sem vitum að hefur búið í liðinu í langan tíma. Það er geggjað að fá að vera partur af þessu,\" bætti hún við en hvað olli því að þetta small algjörlega í dag?

„Ég veit ekki hvað það var en taktíkin var 100% og allir voru 100%. Ég talaði um það fyrir leik að ef við ætluðum að vinna þá þyrftu allir að vera með 100% einbeitingu og form og það datt allt með okkur í dag. Það er frábært.\"

Ísland komst yfir í tvígang í leiknum og leiddi lengi í seinni hálfleik 1-3 eða þar til Þjóðverjar skoruðu 2-3 í lokin og spennan varð mikil.

„Það var alveg magnað að spila þennan leik. Þrátt fyrir að þær jafni eftir að við komumst yfir þá hefur maður dúndrandi trú á þessu liði. Ég vissi að við kæmum til baka, framherjarnir og miðjumennirnir unnu eins og brjálæðingar til að skora mörk númer 2 og 3. Þetta voru líka frábær mörk, ekki einhver amatour mörk heldur geggjuð mörk og við hefðum getað skorað ennþá fleiri.\"

Nánar er rætt við hana í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.