Fotbolti.net
20.10.25 - 12:25
Elvar Geir Magnússon

Yfirlýsing Vals: Ekki fjárhagslega ábyrgt að greiða fyrir afrek fortíðar

Sigurður Egill Lárusson kveður Val.

Sigurður Egill Lárusson kveður Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjórn fótboltadeildar Vals hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðu varðandi Sigurð Egil Lárusson sem mun yfirgefa Val eftir tímabilið.

Stjórn Vals ákvað að bjóða Sigurði Agli ekki nýjan samning og leikmaðurinn gagnrýndi hvernig staðið var að því. Stjórninni þykir leitt að hann sé ósáttur með aðkomu þeirra að málinu.

„Þegar stjórn félagsins tekur ákvarðanir er það með hagsmuni félagsins til framtíðar. Það er ekki fjárhagslega ábyrgt af okkar hálfu að greiða í framtíðinni fyrir afrek fortíðar," segir í yfirlýsingunni sem sjá má heild hér að neðan.
Siggi Lár ósáttur við viðskilnaðinn: Ég er búinn að reyna að tala við stjórn Vals í allt sumar
TENGT EFNI

Siggi Lár ósáttur við viðskilnaðinn: Ég er búinn að reyna að tala við stjórn Vals í allt sumar



Yfirlýsing Vals í heild sinni
Stjórn knattspyrnudeildar hefur átt samtöl og fundi með leikmanninum vegna þessa, þá fyrst fyrir tímabilið þar sem til tals kom af hálfu leikmanns að leita á önnur mið vegna takmarkaðs spiltíma.

Síðan tók leikmaður ákvörðun um að taka slaginn með Val í sumar. Um mitt sumar veitti stjórn fyrir hönd félagins leikmanninum viðurkenningu fyrir að slá met yfir flesta leiki í efstu deild hjá Val. Á síðasta fundi stjórnar með leikmanninum í septembermánuði sömdum við fyrir hönd félagsins um að gera betur við hann en samningur segir til um vegna starfsloka hans.

Siggi hefur átt frábæran feril hjá Val og skapað frábærar minningar og leikið lykilhlutverk í liðum sem unnu titla á árunum 2015-2020. Á þessu tímabili hefur spilmínútum fækkað og hann spilað minnihluta leiktíma liðsins í sumar.

Þegar stjórn félagsins tekur ákvarðanir er það með hagsmuni félagsins til framtíðar. Það er ekki fjárhagslega ábyrgt af okkar hálfu að greiða í framtíðinni fyrir afrek fortíðar.

Stjórn knattspyrnudeildar Vals þykir leitt að leikmaðurinn sé ósáttur við aðkomu okkar að málinu. Það er vilji okkar að kveðja leikmenn, ekki síst þá sem hafa verið lengi hjá félaginu á fallegan hátt.

Þá er vert að benda á það að tímabilinu er ekki lokið og umræddur leikmaður á enn eftir að leika sinn síðasta leik fyrir félagið. Í kjölfarið fer fram lokahóf deildarinnar sem er sá vettvangur þar sem við heiðrum leikmenn okkar fyrir vel unnin störf fyrir félagið.
Yfirlýsing Vals: Ekki fjárhagslega ábyrgt að greiða fyrir afrek fortíðar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.