20.10.26 - 17:47
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo leiðir kosningu um besta Ballon d’Or-hafa sögunnar

Cristiano Ronaldo

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo

Mynd: EPA
Portúgalski sóknarmaðurinn Cristiano Ronaldo þykir sigurstranglegastur í nýrri verðlaunakosningu sem fer fram í tengslum við Ballon d’Or-hátíðina í næstu viku.
Tilkynnt var í dag um ný verðlaun sem kallast BOAT, en þeim er ætlað að heiðra besta leikmanninn í sögu Ballon d’Or-verðlaunanna. Til að fá tilnefningu þarf leikmaður að hafa unnið Ballon d'Or að minnsta kosti tvisvar á ferlinum.
Alls eru tíu leikmenn sagðir vera tilnefndir, en meðal þeirra eru Lionel Messi, Cristiano Ronaldo, Franz Beckenbauer, Alfredo Di Stefano, Ronaldo, Johan Cruyff, Marco van Basten, Michel Platini, Kevin Keegan og Karl-Heinz Rummenigge.
Sigurvegarinn verður valinn í netkosningu þar sem Ronaldo er sem stendur með forystuna eða um 75 prósent atkvæða. Portúgalinn hefur fimm sinnum unnið Ballon d’Or á ferlinum, en Messi er handhafi flestra verðlauna eða átta talsins.
Kosningunni lýkur 27. október og þykir Ronaldo eiga góða möguleika á sigri, ekki síst vegna þess hversu stóran stuðningsmannahóp hann hefur á heimsvísu.

CRISTIANO RONALDO IS LEADING ???????????? You can still vote for your B.O.A.T. and try to win 2 tickets to the 2027 ceremony! ???? Choose your BALLON D'OR OF ALL TIME among the players who have won the award multiple times. ? Take part now at ?? https://t.co/JAdFdjETfA #ballondor #boat
— Ballon d'Or (@ballondor) October 20, 2026