Fotbolti.net
20.11.19 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Bale gæti verið í vandræðum eftir fagnaðarlætin í gær

Gareth Bale fagnar af innlifun í gær

Gareth Bale fagnar af innlifun í gær

Canon

Mynd: Getty Images

Velska stjarnan Gareth Bale gæti verið í vandræðum fyrir fögnuð sinn eftir 2-0 sigurinn á Ungverjalandi í gær.
Velsku stuðningsmennirnir eru farnir að syngja um forgangsröðun Bale sem er samkvæmt honum Wales, golf og svo Real Madrid. Í nákvæmlega þessari röð eins og þeir orða það.

Wales komst á EM í gær með 2-0 sigri á Ungverjalandi en í fagnaðarlátunum fengu leikmenn velska liðsins borða sem var einmitt merktur með forgangsröðuninni.

Bale dansaði þar og skemmti sér með borðann en ljóst er stjórnarmenn Real Madrid munu ekki kætast yfir þessu uppátæki hans.

Hann hefur verið orðaður við Manchester United síðustu daga en leikmaðurinn er afar ósáttur með stöðu sína í Madríd.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.