Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 20. nóvember 2021 18:49
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu atvikið: Arteta og Klopp spjaldaðir eftir heiftarlegt rifrildi
Jürgen Klopp og Mikel Arteta voru sjóðheitir á hliðarlínunni
Jürgen Klopp og Mikel Arteta voru sjóðheitir á hliðarlínunni
Mynd: EPA
Það er heldur betur fjör í leik Liverpool og Arsenal í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en Jürgen Klopp og Mikel Arteta rifust heiftarlega í fyrri hálfleiknum.

Arteta virtist mislíka eitthvað sem Klopp sagði og í kjölfarið voru nokkur vel valin orð látin falla.

Fjórði dómari leiksins þurfti að aðskilja þá og Arteta var svo heitt í hamsi að þjálfaraliðið þurfti að halda aftur af honum.

Þeir fengu báðir gult spjald fyrir og stuttu síðar kom Sadio Mane liði LIverpool yfir. Klopp fagnaði því vel og innilega. Staðan er 2-0 en Diogo Jota bætti við öðru í síðari hálfleiknum.


Athugasemdir
banner