Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. janúar 2022 20:50
Victor Pálsson
Kolbeinn í tapliði í Belgíu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kolbeinn Þórðarson spilaði fyrstu 87 mínúturnar á miðjunni fyrir Lommel í Belgíu í kvöld sem spilaði við RWDM í B-deild þar í landi.

Lommel þurfti að sætta sig við 2-0 tap á útivelli þar sem Kolbeinn spilaði allar mínúturnar á miðjunni.

Lommel situr í sjöunda sæti deildarinnar og er með 16 stig eftir 17 leiki.

Kolbeinn Birgir Finnsson spilaði þá með varaliði Dortmund sem spilaði við varalið Freiburg fyrr í kvöld.

Kolbeinn byrjaði þennan leik á varamannabekknum en kom við sögu þegar 59. mínútur voru komnar á klukkuna.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og situr Dortmund í fimmta sæti þriðju deildar Þýskalands eftir stigið í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner