Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 21. janúar 2022 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óheppnin eltir Bamford: Tekst á við ný meiðsli
Patrick Bamford.
Patrick Bamford.
Mynd: EPA
Patrick Bamford sló í gegn með Leeds í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, en á þessari leiktíð hefur annað verið upp á teningnum.

Bamford hefur verið á meiðslalistanum og lítið náð að sýna hvað hann getur inn á fótboltavellinum.

Bamford spilaði síðast snemma í desember á síðasta ári þegar hann skoraði í jafntefli gegn Brentford. Hann kemur ekki til með að spila á næstunni.

Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, segir að Bamford sé að glíma við ný meiðsli. Hann hafi verið að glíma við vöðvameiðsli en núna sé hann meiddur á fæti.

Hann hefur aðeins komið við sögu í sex leikjum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu; gríðarlega svekkjandi tímabil fyrir hann.
Athugasemdir
banner
banner