13.09.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
De Zerbi ósáttur með Tel

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Roberto De Zerbi þjálfari Tottenham var ósáttur með Mathys Tel í markalausu jafntefli gegn Everton í gær.

TENGT EFNI
England: Tottenham getur ekki skorað mark
Tel kom inn af bekknum fyrir Dominic Solanke á 63. mínútu og átti að leiða sóknarlínuna, en De Zerbi var ekki ánægður með hvernig Frakkinn ungi gerði það.
Viðbrögð De Zerbi náðust á myndband þar sem hann var augljóslega mjög pirraður á hreyfingum Tel í sóknarlínunni. Ítalinn var spurður út í atvikið eftir lokaflautið.
„Ég var að þjálfa hann á vellinum. Líkamsstaðan hjá honum var röng. Hann var að spila sem framherji og framherjinn getur ekki spilað með bakið í markið. Þegar við erum með Maddison, Kudus og Savio á vellinum þá verður Mathys (Tel) að vera fremsti maður og fremsti maður verður að horfa á markið og vera alltaf vel staðsettur í vítateignum," sagði De Zerbi.
„Mathys byrjaði ferilinn sem framherji svo hann á að þekkja þetta. Hann spilar sem kantmaður í dag, en hann byrjaði sem framherji. Ég elska hann sem leikmann og sem manneskju, það er ekkert vandamál þar."

????????: Robert De Zerbi teaching Mathys Tel how to play football pic.twitter.com/RNm3Icsm8u
— XO Football (@XOFooty) September 12, 2026

TENGT EFNI
De Zerbi: Byrjuðum tímabilið alltof seint

Mynd: EPA