13.09.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Moyes: Þurfum að þrauka gegnum næstu 14 eða 15 leiki

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Everton

Mynd: EPA
David Moyes þjálfari Everton svaraði spurningum eftir markalaust jafntefli á útivelli gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær.

TENGT EFNI
England: Tottenham getur ekki skorað mark
Moyes var ekki sérlega ánægður með frammistöðu sinna manna og talaði um að vera með alltof lítinn leikmannahóp til að takast á við áskoranir tímabilsins.
„Við sýndum mikla baráttu eftir erfiða byrjun á leiknum. Tottenham byrjaði af miklum krafti og komst í mikið af góðum stöðum en strákarnir gerðu vel að henda sér fyrir skotin þeirra. Við unnum okkur inn í leikinn og að lokum verðskulduðum við að sækja þetta stig," sagði Moyes.
„Við erum ekki í bestu málunum þegar kemur að breidd í leikmannahópnum. Við verðum að reyna að þrauka, ég held að þetta séu kannski 14 eða 15 leikir í viðbót áður en janúarglugginn opnar. Við verðum að gera okkar besta til að halda leikmönnunum okkar í góðu formi og fjarri meiðslum.
„Við höfum verið að spila mun betur heldur en við gerðum í dag en vörnin stóð sig. Við tókum oft rangar ákvarðanir með boltann og sköpuðum alltof lítið. Í dag spiluðum við gegn andstæðingum sem keyptu leikmenn fyrir kannski 300 til 400 milljónir punda í sumar og fundum leið til að sækja stig."
Jack Grealish kom við sögu á lokakafla leiksins en hann er að komast aftur í form eftir erfið meiðsli sem hann varð fyrir í janúar.
„Ef Jack getur gert það sama fyrir okkur á þessu tímabili og hann gerði á því síðasta þá verð ég himinlifandi. Hann er búinn að vera frá keppni í meira en hálft ár og þarf tíma til að komast aftur í gott stand. Við verðum að hjálpa honum að finna sitt gamla form án þess að flýta fyrir bataferlinu. Hann elskar að spila fótbolta og vill alltaf spila alla leiki en við viljum ekki taka neinar áhættur.
„Tyrique George hefur líka byrjað tímabilið vel svo við erum með góða samkeppni um byrjunarliðssæti í þessari stöðu."

De Zerbi: Byrjuðum tímabilið alltof seint

Mynd: EPA

Mynd: Everton
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 4 | +7 | 12 |
| 2 | Man City | 3 | +5 | 9 |
| 3 | Hull City | 4 | +3 | 8 |
| 4 | Chelsea | 4 | +1 | 7 |
| 5 | Brentford | 4 | +3 | 6 |
| 6 | Liverpool | 4 | +2 | 6 |
| 7 | Everton | 4 | +2 | 6 |
| 8 | Ipswich Town | 4 | -3 | 6 |
| 9 | Newcastle | 3 | +2 | 5 |
| 10 | Leeds | 3 | +1 | 5 |
| 11 | Nott. Forest | 4 | 0 | 5 |
| 12 | Brighton | 3 | +3 | 4 |
| 13 | Man Utd | 3 | +1 | 4 |
| 14 | Sunderland | 4 | -2 | 4 |
| 15 | Bournemouth | 4 | -1 | 3 |
| 16 | Crystal Palace | 4 | -5 | 3 |
| 17 | Tottenham | 4 | -5 | 2 |
| 18 | Fulham | 4 | -3 | 1 |
| 19 | Aston Villa | 4 | -6 | 1 |
| 20 | Coventry | 3 | -5 | 0 |