Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 21. febrúar 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Liðsfélagarnir hjálpuðu Lacazette í markaþurrð
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, er ánægður með stuðninginn sem framherjinn Alexandre Lacazette fékk frá liðsfélögunum sínum eftir markaþurrð sem hann gekk í gegnum á dögunum.

Lacazette skoraði ekki í níu leikjum í röð áður en hann skoraði í 4-0 sigrinum á Newcastle um síðustu helgi.

Frakkinn fylgdi því síðan eftir með sigurmarki gegn Olympiakos í Evrópudeildinni í gærkvöldi.

„Sjálfstraustið og stuðningurinn kom frá mér og liðsfélögum hans. Það var gaman að sjá hvernig þeir brugðust við þegar hann skoraði," sagði Arteta.

„Þetta er ekki bara tilviljun. Þetta er eitthvað sem gerist þegar hann fær orku frá liðinu."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner